Kvikmyndin Above Iceland verður frumsýnd 10. júní í Bíó Paradís en hún sýnir Ísland frá óhefðbundnu sjónarhorni, að ofan.
Hinrik Ólafsson er handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar en hugmyndin kom upphaflega frá menningarsjónvarpsstöðinni ARTE í Þýskalandi sem hafði samband við Sagafilm sem framleiddi myndina.
Above Iceland fjallar um náttúru og menningu Íslands en nálgunin er óhefðbundin þar sem hún var að mestu leyti tekin upp að ofan með drónum.
Flogið yfir íslenskt landslag
„Áhorfandinn er eins og fugl. Hann svífur um á meðan sögumaður segir sögur af náttúrufari Íslands, menningu eða sögu, og lendir stundum. Þá er flogið yfir tilgreint landslag og textinn í samræmi við það. Síðan er lent einhvers staðar og rætt við alls konar fólk. Það má ekki gleyma að stórbrotin náttúra geymir stórbrotið fólk og menningu, það helst oft í hendur.“
Hinrik hefur ferðast mikið um Ísland yfir ævina ýmist gangandi, á hestum, bílum eða fljúgandi í þyrlum og segir Ísland vera algjörlega einstakt.
„Fólk spyr oft þegar maður sýnir því myndefni frá Íslandi: „Er þetta allt á þessari litlu eyju?“ Ísland er eins og heil heimsálfa þegar kemur að náttúrufyrirbærum og íslensk náttúra er besta handrit sem hægt er að vinna með. Hún er nokkuð skotheld.“
Ítarlegt viðtal er við Hinrik í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.


