Aldrei hefur verið jafn dýrt að vera til á Íslandi, samkvæmt greiningu Visku - stærsta aðildarfélags Bandalags háskólamanna sem birt var í morgun. Síðustu þrjá áratugi hefur munur á verði á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum verið rúm 40 prósent að jafnaði - en mælist nú tvöfalt meiri. Hér má lesa nánar um greininguna.
Í samanburði við önnur Norðurlönd er matvara hér mun dýrari - munurinn er rúm 70 prósent á kjötvörum og enn meiri á mjólkurvörum og eggjum.
Þá er verðlag á veitingastöðum og gististöðum nærri þriðjungi hærra hér en annars staðar á Norðurlöndum.
Fram kemur í greiningunni að hærri laun á Íslandi skýri ekki allan verðmuninn - því hann sé orðinn tvöfaldur á við launamuninn.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 að þó að hráar launatölur hér teljist háar, þurfi að reikna inn í hvað fáist fyrir launin.
„Við búum hérna við fákeppni, það er engin launung. Verð er hátt, það er auðvitað dýrt að komast til og frá landinu. Húsnæðiskostnaður hérna er gríðarlega hár og við erum ekkert að sjá fyrir endann á því. Þannig þetta er það sem við þurfum að reikna inn í allan svona samanburð. Ég tel að það væri æskilegra að við gætum náð verði svolítið niður og þyrftum ekki að fara fram á einhverjar launahækkanir til þess að mæta þessum hækkunum.“
Halla segir kröfu um hærri laun vera það eina sem verkalýðshreyfingin geti gert til þess að bregðast við.
„Við höfum ekkert annað tæki. Þannig ef þetta á að vera einhvernveginn öðruvísi, þá þurfa einhverjir aðrir að koma inn í þetta líka.“