Íranska utanríkisráðuneytið segir þær hörðu aðgerðir vera efnahagslegt hryðjuverk og glæp gegn mannkyni sem Donald Trump Bandaríkjaforseti og fjármálaráðherrann Scott Bessent tilkynntu í vikunni.
Þeir sögðu Íran og öll ríki sem eiga í viðskiptum við landið eða liðsinni því á nokkurn hátt mega búast við refsiaðgerðum sem eigi ekki sinn líka.
Sá síðarnefndi sagði í samtali við CNBC í gær að aðgerðirnar yrðu umfangsmesta samræmda efnahagslega einangrun sögunnar og að samherjar Bandaríkjanna verði spurðir hvort þeir standi með þeim eða gegn.
Trump sagði Írönum hafa verið gefið tækifæri til samkomulags sem þeir hefðu hunsað og því verði gripið til hörkunnar. Hann kallaði aðgerðirnar efnahagslegan D-dag og vísaði þannig til innrásar herja bandamanna í Normandí í Frakklandi 6. júní 1944.
Trump tíundaði ekki í hverju aðgerðirnar fælust. Bessent kvaðst ætla að kynna aðgerðirnar í hörgul á mánudag. Efnahagur þessarar morðóðu stjórnar yrði mulinn mélinu smærra.
Í yfirlýsingu íranska utanríkisráðuneytisins segir að þessi gjörningur sé ekki einasta til marks um þá áratugalöngu fjandsemi og óvild sem bandarískir stjórnmálamenn hafi sýnt írönsku þjóðinni heldur einnig sönnun um mannfjandsamlegt, ólögmætt og hrokafullt eðli bandarísks valdakerfis.
Ráðuneytið bætti við að þeir sem ábyrgð beri skuli dregnir til ábyrgðar og refsað fyrir „hrottalega glæpi“ sína. Bandaríkin hafa, samkvæmt upplýsingum á vefsíðu þingsins, beitt Írana efnahagsþvingunum nánast óslitið frá klerkabyltingunni 1979.