Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að herskip hafi skotið að og yfirtekið flutningaskip sem siglir undir írönskum fána á Ómanflóa. Hermenn hefðu farið um borð til að kanna hvað í skipinu væri að finna.
Skipið hafi brotið gegn herkví Bandaríkjahers og hunsað fyrirskipanir um að nema staðar. Íransher segir athæfið brot á skilmálum vopnahlés og heitir skjótum viðbrögðum.
Íranar og Bandaríkjamenn hafa tekist á um yfirráð yfir Hormússundi um helgina eftir að þeir fyrrnefndu lokuðu eftir skammvinna opnun fyrir siglingar um Hormússund að nýju á laugardag vegna herkvíar þeirra síðarnefndu um íranskar hafnir.
Hér heyrist og sést hvar áhöfninni er sagt að yfirgefa vélarrúmið vegna yfirvofandi skothríðar.
Friðarsamningur ekki til umræðu
Írönsk stjórnvöld tilkynntu í dag að þau ætluðu ekki að ræða friðarsamning við Bandaríkin í Pakistan skömmu eftir að Trump sagði samningamenn á leið til Islamabad í Pakistan þeirra erinda.
Pakistanski forsætisráðherrann Shehbaz Sharif áréttaði í dag vilja stjórnar sinnar til að miðla málum og kvaðst hafa átt uppbyggilegar samræður við Masoud Pezeshkian Íransforseta.
Tyrkneski utanríkisráðherrann Hakan Fidan sagðist vongóður um að vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans verði framlengt á miðvikudag, þegar það rennur sitt skeið. Það gefi stríðandi fylkingum færi á að ræða frið.