Innflytjendur á Íslandi voru 77.226 eða 19,6% mannfjöldans þann 1. janúar 2026. Innflytjendum hefur haldið áfram að fjölga en þeir voru 18,9% landsmanna (73.795) í fyrra.
Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.
„Frá árinu 2012 hefur hlutfallið farið úr 7,4% mannfjöldans upp í 19,6%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, voru 7.838 í byrjun árs 2025 en 8.351 árið 2026. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 21,7% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega á milli ára og voru 7,4% mannfjöldans,” segir í frétt á vef Hagstofunnar.
Í fréttinni kemur fram að innflytjandi sé skilgreindur sem einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur.
„Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn,“ segir enn fremur.
Eins og síðustu ár reyndust Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Innflytjendur frá Póllandi voru þannig 23.055 eða 29,9% allra innflytjenda þann 1. janúar síðastliðinn.
Þar á eftir komu einstaklingar frá Úkraínu (6,1%) og Litáen (4,9%). Pólskir karlar voru 31,1% allra karlkyns innflytjenda eða 13.060 af 41.711. Litáískir karlar voru næst fjölmennastir (5,8%) og síðan komu karlar með uppruna frá Rúmeníu (5,6%).
Pólskar konur voru 28,2% kvenkyns innflytjenda, næst á eftir þeim komu konur frá Úkraínu (7,0%) og þá konur frá Filippseyjum (5,5%).
Þann 1. janúar síðastliðinn bjuggu 55.467 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 64,8% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 34% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst var hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 25,4% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra. Lægst var hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 11,8% mannfjöldans innflytjendur og börn þeirra.