Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

Sex Íslendingar eru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás á mann á sjötugsaldri, palestínskan að uppruna með maltneskt ríkisfang, í Reykholti í apríl 2024. Jafnframt voru 17,66 milljónir króna færðar af bankareikningi hans og var það meðal þess sem kom til umfjöllunar við aðalmeðferð Reykholtsmálsins í Héraðsdómi Suðurlands í dag en mbl.is fjallar um málið.
Lögreglumaður sem vann fjármálagreiningu málsins rakti jafnframt ráðstöfun fjárins. Samkvæmt greiningunni fengu Andri Már um 8,5 milljónir króna, Pétur Már Mortensen Birgisson um 3,7 milljónir, Ingunn um 3,5 milljónir og Sigurður tæpar tvær milljónir. Sigurður millifærði síðar 600 þúsund krónur til Andra og 100 þúsund til Ingunnar.
Ingunn hefur játað, að hluta, þátttöku í málinu en neitar að hafa tekið þátt í ofbeldi.
Maltneskur lögreglumaður sagði brotaþola hafa komið á sjúkrahús aðfaranótt 24. apríl 2024 og greint frá þriggja daga frelsissviptingu en hann var sendur frá Íslandi til Möltu af þeim ákærðu.
Sálfræðingur lýsti brotaþola með virk áfallaeinkenni, mikinn ótta og svefn- og næringarerfiðleika. Tannlæknir greindi jafnframt frá því að brotaþoli hefði verið kjálkabrotinn, með brotnar tennur og hefði misst tennur. Áverkarnir bentu til þess að tanntapið hefði verið nýlegt.