Ingunn Björk Jónsdóttir er látin

Mynd: Shutterstock
Ingunn Björk Jónsdóttir lést á heimili sínu 31. ágúst síðastliðinn, 74 ára að aldri. Hún fæddist á Akureyri 26. nóvember 1951.
Akureyri.net greindir frá andláti hennar.
Ingunn giftist Árna Jóhanni Gunnarssyni árið 1971 og eignuðust þau tvö börn, Árna Þór og Írisi Björk.
Ingunn sinnti fjölbreyttum störfum á Akureyri á starfsævinni, meðal annars hjá Morgunblaðinu, Sundlaug Akureyrar og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún var jafnframt mikil sauma- og prjónakona og rak um árabil vefnaðarvöruverslunina Nýjar línur ásamt vinkonu sinni Kristínu Hjaltalín.
Ingunn var ötull stuðningsmaður Þórs og starfaði meðal annars fyrir félagið sem sjálfboðaliði. Þá var hún meðal stofnenda kvennadeildar Þórs.