Ísland hefur ekkert vöðvaafl og við höfum hrakist undan veðrum og vindum norður í Ballarhafi í bæði eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Við höfum alltaf þurft að vera í vari og njóta skjóls af einhverjum. Frá seinna stríði hafa það verið Bandaríkin en nú er það bara búið og við þurfum að finna nýtt skjól því það mun á það reyna hvort við höfum bakland á einhverjum tímapunkti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Tóm vitleysa að við höfum verið algerlega fullvalda og staðið ein og óstudd