Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað þrjá skólastjórnendur til fimm ára. Þar á meðal skipaði hún í tvö embætti sem losnuðu þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, ákvað að auglýsa frekar en að framlengja skipunartímann.
Ársæll Guðmundsson ákvað að hætta þegar staða hans sem skólameistara í Borgarholtsskóla var auglýst. Hann rakti ákvörðunina til símtals sem hann hafði fengið frá Ingu Sæland um horfið skópar barnabarns hennar.
Árni Ólason ákvað að sækja aftur um embætti sitt sem skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum eftir að það var auglýst laust til umsóknar. Hann var skipaður í embætti til fimm ára. Árni hefur starfað við skólann í 34 ár.
Ásta Laufey Aðalsteindsdóttir var skipuð skólameistari til næstu fimm ára í embættið í Borgarholtsskóla. Hún hefur starfað við skólann í 25 ár sem kennari, verkefnastjóri mannauðsmála, aðstoðarskólameistari og settur skólameistari.
Helga Jóhannsdóttir verður skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð. Embættið losnaði þegar forveri hennar réði sig til starfa hjá Reykjavíkurborg. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og síðast sem settur rektor.