Ekki liggur fyrir hvers vegna flugferðunum var aflýst. Vísir hefur greint frá því að fella hefur þurft flugferðir niður á síðustu vikum vegna þess að ekki hefur tekist að fullmanna áhöfn. Þá hefur Icelandair einnig gripið til aðgerða til að bregðast við hækkandi eldsneytisverði og skorið niður flugáætlun sína á öðrum ársfjórðungi (apríl til júní) um tvö prósent.
Deilan við flugmenn og flugvirkja komin til sáttasemjara
Samningar flugmanna, flugvirkja og flugfreyja hafa verið lausir frá því í fyrra og eru deilur bæði flugmanna og flugvirkja komnar á borð Ríkissáttasemjara. Vísir hefur áður greint frá því að samkvæmt heimildum séu aflýsingar flugferðanna beintengdar kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) við Icelandair.
Ítarleg fréttaskýring um málið birtist á Vísi í gær:
Áfangastaðirnir sem um ræðir eru Frankfurt, Berlín, Stokkhólmur, Portland í Oregon-ríki og Newark, við New York-borg. Brottfarartímar dreifast jafnt yfir daginn. Vél til Frankfurt átti að halda af stað laust fyrir klukkan eitt í nótt, Berlín og Stokkhólmur kl. 7:35 í morgun, Portland kl. 10:00 og Newark kl. 17:00 síðdegis.
Hefur áhrif á hundruð farþega
Búast má við að þetta hafi áhrif á ferðaáætlanir hjá hundruðum farþega en þotur Icelandair taka flestar um það bil 160 til 190 farþega.
Samkvæmt vef Isavia var flugum bæði til Stokkhólms og Færeyja aflýst í gær.
Ekki náðist í Guðna Sigurðsson, upplýsingafulltrúa Icelandair, við vinnslu fréttarinnar.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.