Varnarmálaráðuneyti Litáens varaði íbúa höfuðborgarinnar Vilníusar í morgun við drónaárás. Samgöngur stöðvuðust og almennir borgarar leituðu skjóls í neðanjarðarbyrgjum. Slíkar viðvaranir hafa fært í vöxt í Eystrasaltsríkjunum undanfarna mánuði eftir að Úkraínumenn settu aukinn þunga í árásir í grennd við Sánkti Pétursborg í Rússlandi, skammt frá Eistlandi og Finnlandi.
Þetta er hins vegar í fyrsta sinn frá innrás Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum að íbúar í Evrópusambandsríki og aðildarríki NATO eru hvattir til að leita í skjól vegna yfirvofandi árásar, forseti landsins þar með talinn, forsætisráðherrann og þingmenn.
Stjórnmálaleiðtogar voru fluttir í neðanjarðarbyrgi í kjölfar drónaviðvörunar í fyrra en ekki almenningur.
Viðvörunin var gefin út í klukkan 7:20 í morgun að íslenskum tíma með skilaboðum sem send voru í síma.
„Leitið tafarlaust skjóls í loftvarnabyrgi eða öðrum öruggum stað, passið upp á fjölskyldur ykkar og bíðið frekari fyrirmæla,“ sagði í skilaboðunum.
Almennir borgarar fóru þá þegar niður í kjallara eða þar til gerð skýli. Flugumferð um alþjóðaflugvöllinn í Vilníus var frestað og lestir voru stöðvaðar.
Litáíski herinn segir að merki hafi sést á ratsjám sem bentu til ómannaðra loftfara. Loftvarnaeftirlit NATO var virkjað.