Austurfrétt greinir frá. Þar segir að formlegar viðræður séu hafnar og stefnt er að því að leggja lokahönd á málefnasamninginn í byrjun næstu viku.
Sjá nánar: Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig
Frá stofnun Múlaþings árið 2020 hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn átt í meirihlutasamstarfi. Flokkarnir héldu meirihluta sínum í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum þar sem Framsókn hlaut þrjá fulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn fjóra.