Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) segir framsetningu Samkeppniseftirlitsins á niðurstöðum frumathugunar um verðlagningu á eldsneyti vera óheppilega og telur að dregnar séu ályktanir áður en allar forsendur hafi verið skoðaðar.
SVÞ og Samtök atvinnulífsins sendu frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem framsetning eftirlitsins var gagnrýnd. Spurður hvers vegna samtökin svöruðu ekki efnislega þeim atriðum sem fram koma í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins sagði Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, að það væri ekki unnt á þessu stigi.
Getum kannski ekki nákvæmlega svarað fyrir hvernig þetta lítur út
„Í fyrsta lagi lá þetta fyrir í dag. Efni þessa skjals er svolítið veigamikið,“ sagði hann og benti á að vísað væri til annarra gagna sem þyrfti að fara betur yfir. Samtökin hefðu ekki aðgang að upplýsingum frá olíufélögunum um verðsamsetningu.
„Þannig við getum kannski ekki nákvæmlega svarað fyrir hvernig þetta lítur út.“
Að sögn Benedikts snýst gagnrýni samtakanna því fyrst og fremst um framsetninguna. Hann sagði heildaryfirbragð umræðuskjalsins gefa tilefni til ályktana sem ekki hefðu verið studdar með fullnægjandi hætti.
Þá vísaði hann til orða Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, um að ekki hefði verið skoðað hvað lægi að baki verðþróuninnar.
SKE hljóti að þurfa að gæta hlutlægni
Hann segir Samkeppniseftirlitið eiga að gæta hagsmuna almennings en að það sé einnig sérstakt stjórnvald sem hljóti að hvíla hlutlægnisskylda á. Að hans mati ætti eftirlitið ekki að birta slíkar ályktanir nema „það liggi fyrir miklu meiri líkur en minni á því að það sem þeir nefna eða ályktanir sem þeir draga eigi sér stoð í raunveruleikanum.
Benedikt var spurður hvernig skýra mætti verðhækkanir sem urðu rétt áður en opinber gjöld lækkuðu, sem hann svaraði með gagnspurningu: „Hvernig geturðu skýrt að þetta eigi sér ekki aðrar skýringar?“
Umræðuskjalið hafi til að mynda ekki fjallað um þróun innkaupsverðs á olíu hér á landi og rekstrarþættir eins og launakostnaður væru ekki teknir með í myndina. Þá hefði heldur ekki verið kallað eftir samningum um innkaupin.
„Okkur þykir þetta óheppilegt að þetta hafi komið fram með þessum hætti.“
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um könnun Samkeppniseftirlitsins á álagningu á eldsneyti sem endar á viðtali við framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu.