Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Steinn Ármann Magnússon leikari er látinn. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði á föstudag.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tókust á í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan eftir sex daga var til umræðu.
Samband Bandaríkjanna og Kanada hefur ekki verið jafnt slæmt og það er í dag í langan tíma eftir að Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, gekk frá samningaborðinu þegar ríkin voru á lokametrunum við að skrifa undir tollasamkomulag.
Gæludýraeigendur geta nú nálgast öll heilsufarsgögn dýra sinna á einum stað í nýju appi, en talsmaður verkefnisins segir að fyrir hafi upplýsingagjöf um heilsufar dýra verið brotakennd.
Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kringum Menningarnótt í gær. Þrír voru handteknir eftir líkamsárás í miðbænum þar sem árásaraðilar beittu eggvopnum og hnúajárni.
Ráðast þarf í mikið viðhald á Akureyrarkirkju og er áætlað að viðhaldskostnaður nemi fimm hundruð milljónum.
Í íþróttafréttum er fjallað um vantraustsyfirlýsingu KSÍ og leiki dagsins í íslenska og enska boltanum.