Þar var boðuð stórfelld íbúðauppbygging á ríkislóðum og í ríkiseignum í Reykjavík. Byggðar verða 1.200 til 1.400 nýjar íbúðir á næstu árum á lóðum og í húsnæði í eigu ríkisins, sem breytt verður í íbúðir.
Þá heyrum við í framkvæmdastjóra Herjólfs en ferjan var sex klukkutíma á leiðinni til Vestmannaeyja vegna ólgusjós og vélarbilana.
Að auki heyrum við af íbúafundi sem fram fór í gærkvöldi þar sem íbúar í hverfi 108 lýstu áhyggjum af fyrirhugaðri kaffistofu Samhjálpar sem á að opna í hverfinu.
Í íþróttapakka dagsins verður svo fjallað um Bónusdeild kvenna í körfubolta og leikina sem fram fóru í gær í Bestu deild karla.