Benedikt Grétarsson, eigandi Jólagarðsins í Eyjafjarðarsveit, hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga.
Í dag hefur hann undirbúning þess að færa húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar, sem nú stendur við Strandgötu á Akureyri, að athafnasvæði garðsins en í gær fagnaði Jólagarðurinn jafnframt 30 ára afmæli og var dagurinn haldinn hátíðlegur í garðinum af því tilefni.
Í vikunni samþykkti skipulagsráð Akureyrar að afhenda garðinum húsnæðið án endurgjalds en flutningurinn er þó á ábyrgð garðsins og þarf húsið að vera farið af Strandgötunni eigi síðar en 15. júní.
Benedikt er þakklátur bænum fyrir að hafa ekki rifið húsið, nú komi í ljós hvernig húsið verði nýtt.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.