Dýrfinna, samtök sjálfboðaliða sem aðstoða týnd dýr við að komast aftur heim, auglýstu á dögunum eftir eiganda hunds sem fannst dauður við Langjökul. Það sem er óvanalegt við auglýsinguna er að þar kemur fram að alls óvíst er hversu lengi hundurinn hefur verið týndur.
Eygló Anna Guðlaugsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, segir að ekki liggi fyrir hvort hundurinn hafi orðið úti við jökulinn eða borist niður með ísnum.
„Það eru tillögur um það hvort hann hafi dottið ofan í sprungu en bara mjög erfitt að segja til um það, því að við vitum ekkert hversu lengi eða langt síðan þessi fór,“ segir Eygló.
Gæti þekkst á ólinni
Hundurinn fannst á mjög fáförnum stað. Erfitt er að segja til um tegund hundsins, en hann var með ól. Ef einhver saknar hunds getur hann haft samband við Dýrfinnu og lýst ólinni á sínum hundi og athugað hvort hún sé sú sama. Eygló segir marga hafa haft samband, en enn hafi réttur eigandi hundsins ekki fundist.
„Það hafa margir haft samband við okkur og þá allt að 38 ára gömul mál,“ segir Eygló. Fólk sem týni gæludýrum vilji gjarnan fá að vita hvað varð um þau, og þá gildir engu hversu langt er um liðið.
Dýrfinna vinnur nú að gerð apps, sem ætlað er að hjálpa fólki að finna dýr sem týnast.
„Ef það týnist þá geturðu skráð það og þá ættu notendur nálægt þér að fá í símann sinn tilkynningu um týnda dýrið.“ Þá geti fólk sem verður vart við dýrið sett inn staðsetningu þess í appið, sem auðveldar eigendum við leitina.
Dýrfinna er alfarið rekin í sjálfboðavinnu og með hjálp styrkja frá dyggum dýravinum.