Nokkur hundruð minkar sluppu frá Dalbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Tilkynning um þetta barst lögreglu klukkan rúmlega 7.
„Ekki er fyllilega ljóst hvernig það bar að, en rannsókn lögreglu er á frumstigi. Viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafa verið upplýst um málið og hafa strax brugðist við,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Dalsbú er eina starfandi loðdýrabúið á landinu.