„Við tökum þetta mál að sjálfsögðu mjög alvarlega og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að yfirfara allar öryggisreglur og sjá til þess að tækið verði öruggt í notkun. Það er algjörlega skýrt hjá okkur að öryggi þeirra sem nota hringekjuna sé númer eitt, tvö og þrjú.“
Þetta segir Jan Eric Jessen, einn eigenda Hringekjunnar ehf.
Hringekja fyrirtækisins féll á Bryggjuhátíð á Stokkseyri í gær og foreldrar tveggja barna sem voru í henni fóru með þau á slysadeild í kjölfarið. Samkvæmt lögreglu meiddust börnin ekki alvarlega.
Stöðvuðust snögglega þegar tækið féll
„Það var splitti á festingum sem halda undirstöðunum fyrir hringekjuna sem slitnaði og við það seig í rauninni aftari hlutinn á hringekjunni niður í jörðina og bollarnir, sem eru venjulega í svona 30 sentimetra hæð yfir jörðu, rákust niður í grasið. Við það stoppuðu bollarnir mjög snögglega,“ segir Jan.
Þá hafi komið slinkur, snögg truflun vegna höggs, á þau börn sem voru í hringekjunni.
„Það var þarna einn strákur sem rak höfuðið í stöngina sem heldur bollanum sem hann var í og fékk kúlu á hausinn.“
Jan segist hafa hvatt foreldra stráksins til að fara með hann upp á heilsugæslu. Hann hefur verið í samskiptum við þau.
„Sem betur fer, miðað við það sem foreldrar hans segja, þá virðist hann vera á góðum batavegi. Það er mjög gott að vita af því,“ segir Jan.
Vinnueftirlitið gaf grænt ljós
Tæki eins og þessi verða að fá leyfi frá Vinnueftirlitinu.
„Þetta tæki var skoðað fyrir mánuði síðan og fékk grænt ljós frá Vinnueftirlitinu. En það sem þarf að gera núna í kjölfarið er auðvitað að yfirfara öll atriði er varða öryggi,“ segir Jan.
Hringekjan ehf. ætlar að kaupa nýjar festingar og skipta út öllum sem fyrir voru. Í framhaldi verður að fá staðfestingu frá Vinnueftirlitinu um að þær séu öruggar.
„Nauðsynlegt að yfirfara allt“
Er eitthvað sem þið hefðuð getað gert til að koma í veg fyrir þetta?
„Þetta er virkilega góð spurning. Notkun tækisins var öll í samræmi við reglur og tækið er skoðað og staðfest af Vinnueftirlitinu sem öruggt. Eftir á að hyggja þá er ekkert við notkun tækisins sem er ekki í samræmi við það hvernig það eigi að meðhöndla þau en að sjálfsögðu þegar atvik eins og þetta koma upp þá er algjörlega nauðsynlegt að yfirfara allt, öll atriði sem varða öryggi,“ segir Jan.
Hann bendir á að fleiri sams konar hringekjur séu á landinu og að lítil áhætta fylgi notkun þeirra.
„Sem betur fer koma sjaldan upp atvik þar sem einhver slasar sig en það að komi upp eitt svona atvik er að sjálfsögðu einu of mikið.“