Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og samfélagsrýnir, segir samfélagið hafa gengið í gegnum orkudrykkjabyltingu. Þegar hann sá mann „chugga“ hálfslíters flösku af Egils Orku hafi það verið eins og afturhvarf til ekki svo fjarlægrar fortíðar.
„Ég var að horfa á gaur chugga hálfslíters flösku af Egils Orku,“ segir Hrafn í færslu á samfélagsmiðlum. En chugga þýðir að þamba. „Ég veit ekki af hverju mér fannst það svona merkilegt; kannski af því að ég hef ekki séð né hugsað um Egils Orku síðan ég keypti mér 42″ flatskjá um mitt ár 2008 (stærsta sjónvarp sem ég hafði séð) fyrir tryggingapeningana mína og það fylgdi kassi af Egils Orku með því.“
Þetta hafi fengið hann til að hugsa um orkudrykki og breytt samfélag.
Sjá einnig:
Hvað gerist í líkamanum ef þú drekkur orkudrykk?
„Við erum sem samfélag búin að ganga í gegnum orkudrykkjabyltingu sem er á pari við fjórðu iðnbyltinguna. Það er svo stutt síðan við vorum bara í torfkofunum að lepja Magic úr dós, og skyndilega er hægt að fá sex þúsund mismunandi tegundir af miskrabbameinsvaldaldi orkudrykkjum; það er eins og nýr idjót með of stór heyrnartól kynni nýja blöndu af sama sullinu í hverjum mánuði,“ segir hann. „Það er því eitthvað áþreifanlegt við að sjá einhvern með hálfslíters plastflösku af Egils Orku. Smá eins og að sjá einhvern reykja eða borða roast beef samloku eða borga með reiðuféi. Eins og að hlusta á lífið á vínyl.“