Hvorki ráðherrar í hollensku ríkisstjórninni né hollenskir embættismenn hafa sagt íslenskum stjórnvöldum að til greina komi að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í svari hollenska utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Í svarinu segir að það sé ekki í verkahring hollenska stjórnarráðsins að segja til um undanþágur enda yrðu þær á forræði annarra.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leiðir samningaviðræður fyrir hönd Evrópusambandsins en þegar á hólminn er komið hefur sérhvert aðildarríki neitunarvald í viðræðunum.
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins hefur gefið í skyn að undanþágur séu hugsanlegar, en ráðamenn í ESB-löndum hafa ekki viljað gefa nein slík fyrirheit.
Loforð, þvert nei eða einhvers staðar þar á milli?
Tilefni fyrirspurnarinnar eru ummæli Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, í sérstakri umræðu í neðri deild hollenska þingsins í síðasta mánuði. Þar svaraði forsætisráðherrann því aðspurður að það væri afstaða hollensku ríkisstjórnarinnar að sameiginlega fiskveiðistefna Evrópusambandsins stæði óhögguð og að ný aðildarríki sambandsins þyrftu að undirgangast hana.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lét í kjölfarið hafa eftir sér að ummælin væru ekki í samræmi við samtöl hennar við Jetten, án þess þó að greina frá því hvað nákvæmlega hefði farið þeim í milli.