Er þetta meðal þeirra 147 mála sem skráð eru í kerfi lögreglu frá því í gærkvöldi og nótt en alls eru sjö vistaðir í haldi lögreglu.
Þá barst lögreglu tilkynning um foktjón vegna óveðurs en gul viðvörun hefur verið í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 21 í gærkvöldi vegna hvassviðris. Verða viðvörunin í gildi til klukkan 13 í dag. Í einni tilkynningu var greint frá bárujárnsplötum sem fuku af stað vegna veðursins.
Þá hafði lögregla töluverð afskipti af ökumönnum ýmist fyrir grun um að aka undir áhrifum áfengis- og fíkniefna eða án gildra ökuréttinda.