HMS vekur athygli á hættulegu leikfangi

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Mynd: Skjáskot/Ja.is
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill vekja athygli á barnaleikfangi í laginu eins og bíllykill með fjarstýringu, rafhlöðum og þremur lyklum. Leikfangið hefur verið tekið af markaði þar sem það stóðst ekki öryggiskröfur.
Leikfangið getur festst í hálsi barns og valdið köfnun.
Leikfangið var selt í gegnum Shein og hugsanlega fleiri vefverslunum. Talið er að leikfangið sé í umferð á Íslandi og eigendur leikfangsins eru hvattir til að hætta notkun leikfangsins sem fyrst.
Mynd: HMS