Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) leggur til að greiðslur húsnæðisbóta verði skertar um allt að þrjá milljarða króna og fénu frekar varið til uppbyggingar íbúða fyrir tekjulægri heimili.
Þetta er meðal tillagna stofnunarinnar að markvissari stuðningi við leigjendur. Þær koma fram í nýútgefnum Vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi til leigjenda.
HMS þykir að ráðstafa megi betur húsnæðisstuðningi frá ríkinu með því að áætla húsnæðisbætur eftir leigubyrði. Þannig mætti draga úr útgjöldum þeirra um 30% eða allt að þrjá milljarða króna á ári.
„Hægt væri að nýta þessa upphæð til að fjármagna allt að 200 íbúðir í almenna íbúðakerfinu.“ Bent er á að leigjendur gætu átt kost á að kaupa íbúðir sínar með aðstoð hlutdeildarlána.
Hækkun húsnæðisbóta skammgóður vermir
Húsnæðisbætur auka greiðslugetu leigjenda sem getur leitt til hærra leiguverðs, samkvæmt HMS. „Stofnframlög styðja hins vegar við framboðshlið leigumarkaðarins og leiða því að öðru óbreyttu til lægra leiguverðs til lengri tíma.“
Samkvæmt greiningu HMS leiða hærri grunnfjárhæðir húsnæðisbóta gjarnan til þess að leiguverð hækkar.
HMS telur að ef húsnæðisbætur yrðu aðeins greiddar til leigjenda sem myndu annars búa við íþyngjandi leigukostnað gætu stjórnvöld sparað um þrjá milljarða á hverju ári. Væri fénu veitt í uppbyggingu allt að 200 íbúða með hjálp stofnframlaga telur HMS að það gæti stuðlað að lægra leiguverði.
Vilja koma á leið fyrir leigjendur að eignast
Spurningakannanir benda til þess að mikill meirihluti leigjenda sé af nauðsyn á leigumarkaði en vildi frekar vera íbúðaeigendur. HMS leggur til að búnar verði til skýrari leiðir til þess að eignast íbúðir í almenna íbúðakerfinu.
Ein slík leið gæti verið að gefa leigjendum tækifæri til að kaupa íbúðir sem þeir leigja. Kaupin gætu þeir fjármagnað með láni eða með hlutdeildarlánum frá HMS og íbúðaláni.
„HMS bendir þó á að ofangreind ráðstöfun ætti ekki að leiða til þess að íbúðum innan almenna íbúðakerfisins fækki. Stofnframlagið sem veitt var fyrir uppbyggingu þessara íbúða yrði endurgreitt og veitt til uppbyggingar nýrra íbúða innan almenna íbúðakerfisins,“ segir í tilkynningu.
Vilja auka eftirlit og tengja stuðningskerfi
Í Vegvísinum eru lagðar fram tvær tillögur um aukna samþættingu húsnæðisbóta og aukið eftirlit með virkni þeirra. Þannig yrði húsnæðisstuðningur til leigjenda markvissari með bættri yfirsýn á nýtingu úrræðanna, að mati stofnunarinnar.
„HMS telur að hægt væri að einfalda umsóknar- og afgreiðsluferli bótaþega með aukinni samþættingu stuðningskerfa almennra húsnæðisbóta ríkisins og sérstaks húsnæðisstuðnings sveitarfélaga. Þannig væri hægt að tryggja jafnt aðgengi fyrir leigjendur óháð búsetu og sveitarfélagamörkum.“
HMS telur að hið opinbera þyrfti samhliða að auka gagnamiðlun sín á milli og eftirlit. Þannig væri hægt að fá heildstæðari yfirsýn á hvort stuðningurinn væri raunverulega að fara til heimila sem þurfa hann.