Aftur á móti er spáð hvössum vindstrengjum norðantil á Snæfellsnesi í dag.
Þetta má lesa í spá Veðurstofu Íslands. Þar segir að hiti sé 6 til 12 stig að deginum.
Þá segir að búast megi við svipuðu veðri á morgun, sunnudag, þó að líklega bæti aðeins í úrkomuna á Suður- og Vesturlandi.
Í byrjun næstu viku er svo spáð sunnan strekkingi og vætusömu veðri, en þá léttir væntanlega til norðaustanlands á þriðjudag. Fremur hlýtt.
Síðan er að sjá að kólni allmikið á landinu, fyrst í suðvestanátt en síðar vestlægari og norðvestlægari undir helgi. Má þá búast við að hluti úrkomunnar falli sem slydduél eða jafnvel snjóél.