Hljóðmaður Íslands selur einbýli með innanhúspotti

Við Starrahóla 5 í hverfi 109 Reykjavík er komið á sölu sérlega glæsilegt einbýlishús á þremur pöllum með tvöföldum bílskúr og óhindruðu útsýni yfir borgina. Ásett verð eignarinnar er 169,9 milljónir króna.
Það er Huldar Freyr Arnarson og fjölskylda sem selja húsið en Huldar er einn þekktasti og virtasti hljóðmaður landsins í kvikmyndabransanum og hefur stundum verið nefndur hljóðmaður Íslands.
Húsið var byggt árið 1978. Eignin stendur í botnlangagötu á vinsælum stað og hefur verið mikið endurbætt og innréttuð með vönduðum hætti.
Samkvæmt skráningu er húsið 262,8 fermetrar að stærð, þar af er íbúðarhluti 218 fermetrar og 44,8 fermetra bílskúr sem hefur verið innréttaður sem stúdíó. Þá hefur einnig verið útbúin líkamsræktaraðstaða með saunaklefa, heitum potti, sturtu og góðu æfingarými í um 60 fermetra óskráðu rými á millihæð. Heildarstærð eignarinnar er því í raun um 322 fermetrar.
Húsið skiptist í efri, milli- og neðri hæð og er byggt inn í hlíð. Gengið er inn á efri hæð af stórri hellulagðri suðurverönd. Þar er að finna stór og björt alrými með glæsilegu útsýni yfir borgina. Í húsinu eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, en möguleiki er á allt að átta herbergjum.
Vandaður Carrara-marmari prýðir gólf eignarinnar og skipulag hússins er sagt einstaklega vel heppnað. Þá nýtist tvöfaldur bílskúrinn sem stúdíó og fjölbreytt aðstaða fyrir líkamsrækt og vellíðan setur svip sinn á eignina.