Samkvæmt umfjöllun Verdens gang leit ekki út fyrir að um alvarlegt slys væri að ræða. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í nágrenninu þar sem umfang áverka hans var ljóst. Hann var þá fluttur með þyrlu á Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló.Áreksturinn átti sér stað á gangbraut. Bíll nam staðar við gangbrautina til að hleypa tveimur fótgangandi yfir götuna og keyrði svo yfir gangbrautina. Hinn slasaði ætlaði þá einnig að fara yfir gangbrautina á rafhlaupahjóli sínu en klessti á hlið bílsins.Maðurinn var undir áhrifum samkvæmt lögreglunni. Ökumaður bílsins var kona á áttræðisaldri.
Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli - Vísir