Gangi veðurspáin eftir verður steikjandi hiti og sólskin á Austurlandi um næstu helgi.
Veðurstofa Íslands spáir að hitinn geti náð allt að 24 stigum á Austurlandi á laugardaginn og 27 á sunnudaginn þegar best lætur.
Á vesturhelmingi landsins verður helgin fremur blaut en spáð er dálítilli rigningu eða súld og þokulofti við ströndina með hita á bilinu 8 til 15 stig.