Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að borgin sé að eyða meiru en hún aflar og það sé augljóslega ekki sjálfbært.
Ársreikningur borgarinnar var afgreiddur á fundi borgarráðs í gær, en greint var frá því að rekstrarniðurstaða A-hluta borgarsjóðs hafi verið neikvæð um 5,3 milljarða króna.
Hildur segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að útgjaldavöxturinn sé eins og venjulega umfram tekjuvöxt.
„Við erum að eyða meiru en við öflum, sem er ekki sjálfbært. Það þarf að ráðast í umfangsmikla tiltekt í rekstri borgarinnar og taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst. Það sem helst mun hreyfa nálina er að minnka yfirbygginguna, fækka millistjórnendum, útvista verkefnum og fækka þeim sem og að ráðast í niðurgreiðslu skulda,“ segir hún við Morgunblaðið.
Í tilkynningu sem borgin sendi frá sér í gær var þess getið að rekstrarniðurstaða A- og B- hluta hefði verið jákvæð um 8 milljarða, en niðurstaðan af rekstri A-hluta hafi hins vegar verið neikvæð um ríflega fimm milljarða.
Var mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga nefnd sem helsta ástæða þessa auk þess sem há verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði hafi leitt til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna.
Í samtali við Morgunblaðið segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri að þessi háa lífeyrissjóðaskuldbinding hafi komið á óvart og verið hærri en búist var við. Bendir hún hins vegar á að rekstur einstakra sviða hafi gengið vel og betur en undanfarin ár.