Það dregur mögulega til tíðinda í myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í dag.
Nú fyrir hádegi var borgarráðsfundur í Ráðhúsinu og Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur setið þann fund í morgun.
Síðar í dag boðar hún, samkvæmt heimildum fréttastofu, borgarstjórnarflokkinn sinn á sinn fund. Sá hópur hefur ekki fundað formlega í heild sinni síðan á sunnudag en miklar þreifingar varðandi meirihlutasamstarf hafa átt sér stað í millitíðinni. Á þessum fundi reynir Hildur eflaust að átta sig betur á því hvaða stemmning er í hópnum fyrir þeirri meirihlutamyndun sem hún vill láta reyna á. Slagorð sjáflstæðismanna í þessum kosningum var Strax-D svo hún vill eflaust hafa nokkuð hraðar hendur við þetta allt saman en þó taka vel ígrundaðar ákvarðanir í samráði við sitt fólk.
Við fáum að vita á eftir hvar þessi borgarstjórnarflokksfundur sjálfstæðismanna verður haldinn og ekki loku fyrir það skotið að við fáum einhver viðtöl eftir fundinn. Svo er bara spurning hvaða viðtökur Hildur fær við sínum hugmyndum á þessum fundi og hvað hún tekur sér langan tíma til að melta þær og marka næstu skref og hvenær hún boði oddvita þeirra flokka sem hún velur á sinn fund. Hvort það verður síðdegis í dag nú eða á morgun vitum við ekki. En það er í raun ekki fyrr en þá sem formlegar meirihlutaviðræður hefjast.
Þær taka svo eflaust nokkra daga og ef menn ná saman um málefnin og áherslurnar til næstu fjögurra ára þá verður þessi meirihluti til. Nú ef ekki þá þarf að gera aðra tilraun. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar verði með í meirihlutanum, -stóra spurningin er bara hvort Hildur velur Miðflokk eða Viðreisn.