Sjálfstæðisflokkurinn hrósaði sigri víða um land í sveitarstjórnarkosningunum en hvergi var betur fagnað en í gamla Sjálfstæðissalnum við Austurvöll þegar Hildur Björnsdóttir oddviti gekk inn sigri hrósandi eftir að fyrstu tölur bentu til þess að flokkurinn næði níu mönnum inn í borgarstjórn.
Lokatölur innsigluðu þá niðurstöðu. Meirihlutinn er fallinn og uppi stendur Hildur sem sigurvegari með pálmann í höndunum. Flokkurinn hefur ekki hlotið betri kosningu í Reykjavík síðan 2010.
Í borgarstórn Reykjavíkur sitja 23 borgarfulltrúar og þarf því tólf manns til að mynda meirihluta.
Tvær líklegar sviðsmyndir hafa teiknast upp um meirihluta í borginni. „Nú þarf bara svolítið að vega [þær] og meta,“ sagði Hildur í viðtali við Sýn í gær. Hún viðurkenndi þar að einhverjir oddvitar væru farnir að hvísla að sér „ástarorðum“.
Í kosningavakt Vísis er hægt að lesa um vendingar næturinnar í sveitarfélögum um allt land. Auk þess verða oddvitar í Reykjavík til tals í Sprengisandi kl. 10 í dag.