Einnig heyrum við í Herjólfsmönnum en ferjan stefnir á að sigla frá Landeyjahöfn síðdegis en hún hefur þurft að notast við höfnina í Þorlákshöfn undanfarið þar sem dýpi skortir í Landeyjum.
Að auki hitum við upp fyrir Pallborð dagsins en í þetta sinn mæta oddvitaefni í Kópavogi og takast á um hitamálin í bænum fyrir komandi kosningar.
Í sportpakka dagsins verður svo fjallað um oddaleikinn sem framundan er um laust sæti í Bónus-deild kvenna.