Mikil seinkun varð á komu Herjólfs til Vestmannaeyja í kvöldferðinni í gær. Klukkan var orðin um hálf þrjú í nótt þegar skipið kom loksins í höfn í Vestmannaeyjum. Þá var ferðin búin að standa yfir í um sjö klukkustundir.
Annar rafmótor Herjólfs bilaði fyrir hálfum mánuði. Vegna bilunarinnar og sjóalags gat skipið aðeins siglt á um fimm til sex sjómílna hraða.
Herjólfur lagði af stað frá Þorlákshöfn þegar klukkuna vantaði 20 mínútur í átta í gærkvöld og var ekki kominn í Vestmannaeyjahöfn fyrr en klukkan hálf þrjú.
Ekki er útlit fyrir að hægt verði að sigla Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi til Landeyjahafnar næstu daga, hún hefur verið lokuð mestallt árið vegna sandburðar. Á meðan hefur verið siglt til Þorlákshafnar sem er mun lengri leið.
Ófremdarástand í samgöngumálum
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum Eyjamanna.
Hann segir veður- og sjólagsspá óhagstæða og því ekki öruggt að Herjólfur sigli í kvöld. Hann bindur þó einhverjar vonir við að Herjólfur sigli á laugardaginn þar sem útlit sé fyrir batnandi veður og ölduspá. Yfir þúsund manns eru skráð í utanvegahlaupið Puffin run sem fer fram í Vestmannaeyjum um helgina.
Í gærkvöld var stofnaður undirskriftarlisti til að krefjast úrbóta í Landeyjahöfn. Fleiri en þúsund manns hafa þegar skrifað undir. Ólafur segir ástandið í Landeyjahöfn óásættanlegt.
„Núna á næstu vikum er von á tillögum að úrbótum á Landeyjahöfn sem við bindum miklar vonir við og þurfum að fá í framkvæmd þannig að þessi höfn virki eins og ætlast var til í upphafi.“