Maðurinn, sem brenndist illa eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ í fyrradag hefur verið fluttur með sjúkraflugi til Noregs. Rafvopni var beitt í aðgerðunum og héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á atvikinu.
Maðurinn var fluttur á spítala á mánudag með alvarleg brunasár um allan líkamann. Hann hafði hellt yfir sig eldfimum vökva, og kviknaði í honum eftir að lögregla beitti rafbyssu á hann. Lögregla telur hann hafa borið að sér eld, en getur ekki útilokað að vopnið hafi valdið íkveikjunni.
Sjónarvottur taldi að maðurinn væri í öruggri fjarlægð frá lögreglu
Þá skipaði lögregla sjónvarvotti, Ísaki Berglindarsyni, sem tók atvikið upp á síma sinn að eyða myndefninu. Ísak segir í samtali við fréttastofu að hann hafi talið manninn vera í öruggri fjarlægð frá lögreglumönnunum þegar rafbyssunni var beitt, og að lögregla hafi ekki nálgast manninn eftir að það kviknaði í honum, eða hjálpað honum, fyrr en honum hafði tekist að slökkva í sér sjálfur.
Brunaáverkar mannsins voru það alvarlegir að hann hefur verið fluttur á spítala í Noregi, þar sem sérhæfing er meiri, samkvæmt svörum frá Landspítala.
Lögreglumennirnir verða ekki sendir í leyfi á meðan rannsókn stendur
Héraðssaksóknari hefur tekið atvikið til rannsóknar sem og nefnd um eftirlit með lögreglu. Lögregla hefur afhent gögn úr búkmyndavélum og rafbyssunni. Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að lögreglumennirnir sem voru á vettvangi, og sá sem beitti vopninu, verði ekki sendir í leyfi á meðan atvikið er rannsakað.
Mikil hætta á að rafbyssum sé misbeitt
Amnesty á Ísland hefur gagnrýnt að lögregla hér beri rafbyssur. „Það sem við erum sérstaklega að horfa til er annars vegar að þetta eru vopn sem geta valdið dauða og langvarandi miska en einnig er mikil hætta á því að þeim sé misbeitt og þau notuð í aðstæðum þar sem væri hægt að nota önnur vægari úrræði,“ segir Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi.
Nýlega birti Amnesty International skýrslu um rafbyssunotkun og afleiðingar hennar.
Framleiðandi rafbyssanna varar við notkun þeirra nærri eldfimum efnum en ekkert minnst á það reglum lögreglu
Aðeins lögreglumenn sem hafa lokið námskeiði mega nota slík vopn. Ekkert er minnst á notkun rafbyssa í nálægð við eldfim efnií reglum um vopnanotkun lögreglu, þrátt fyrir að þær geti valdið íkveikju. Framleiðandi byssanna varar sérstaklega í leiðbeiningum við notkun þeirra nálægt eldfimum efnum.
Í reglum um vopnanotkun lögreglu segir að heimilt sé að nota rafvarnarvopn þegar talið er að úðavopn eða kylfa muni ekki nægja til að yfirbuga aðila. Einnig ef talið er að notkun þess geti afstýrt frekari hættu fyrir hann sjálfan eða aðra - svo sem þar sem hægt er að halda meiri fjarlægð.
Notkunin verði alltaf að vera nauðsynleg og réttlætanleg. Þá má ekki nota það gegn þeim sem eru í áberandi slæmu líkamlegu ástandi eða augljóslega þunguðum konum.
Ríkislögreglustjóri setur nánari verklagsreglur - fréttastofa óskaði eftir þeim í dag en þær hafa ekki borist.
Veldur auðvitað áhyggjum um hvort að lögreglan hafi þarna gengið kannski aðeins of langt
Anna segir að bíða þurfi niðurstöðu rannsóknar á atvikinu, en það sem fram hafi komið veki upp spurningar.
„Auðvitað hefur maður áhyggjur af því að þarna hafi rafbyssu svona verið beitt gagnvart manni sem var mögulega í geðrofi og var með eldfiman vökva á sér. Þetta veldur auðvitað áhyggjum hvort að lögreglan hafi þarna gengið kannski aðeins of langt,“ segir Anna.
Veltir upp tveggja daga þjálfun dugi til að bera slík vopn
Hún segir að hafa þurfi í huga að heilsufarsástands fólk liggi ekki alltaf augljóslega fyrir „Það er ekki alltaf hægt að greina í hvers konar andlegu ástandi viðkomandi er eða líkamlegu ástandi.“
„Þjálfunin sem lögreglan fær eru tveir dagar í notkun rafbyssa. Það er spurning hvort að þetta geti talist næg þjálfun til þess að geta greint allar þessar mismunandi aðstæður sem lögreglan fer inn í og og hreinlega hvort að þröskuldurinn sé nógu hár, til að beita rafbyssu,“ segir Anna Lúðvíksdóttir.