Helsta náttúruupplifun umhverfisráðherra að fara í sumarhús á Suðurlandi
Umhverfisráðherra segir einn af sínum eftirlætisstöðum í náttúru Íslands vera Laugarás í Laugaráshverfinu í Reykjavík. Náttúruverndarsinnar gagnrýna ráðherrann og segja hann úr tengslum við náttúruna.
Náttúruverndarsinnar eru undrandi á svörum Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis- og orkumálaráðherra, þegar hann svaraði því til í Græna borðinu á Samstöðinni að hans helsta tenging við náttúruna væri Laugarásinn í Reykjavík og í sumarbústað í Laugarási í Biskupstungum. Náttúruverndarsinnarnir og fjölmiðlamennirnir Jón Kaldal og Páll Ásgeir Ásgeirsson eru umsjónarmenn þáttarins Græna borðsins og fengu ráðherrann í heimsókn til sín. Þeir spurðu ráðherrann í upphafi þáttarins um samband manns við náttúru.
Laugarásinn stendur upp úr
„Hver er þinn eftirlætis staður á Íslandi og af hverju?“ spurði Jón Kaldal og Páll Ásgeir bætti um betur og spurði um persónuleg tengsl ráðherrans við náttúruna. Umhverfis- og orkumálaráðherrann Jóhann Páll var nokkuð lengi að finna svarið, sem kom þó að endingu.
„Ef maður verður alveg ofboðslega óspennandi hérna í byrjun – þá er ég úr Laugardalshverfi og elst upp [...] með Laugarásinn þarna rétt hjá okkur og svona. Og þar var maður mikið að …