Helmingslíkur eru á að Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um að opna Hormússund. Þetta segir ráðgjafi forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Hann varar við ófullnægjandi vopnahléi milli ríkjanna tveggja.
Anwar Gargash, ráðgjafi forseta, er á öryggisráðstefnunni GLOBSEC í Prag. Hann sagði Evrópuríki ekki eiga að líta á stjórn Írana yfir Hormússundi sem fjarlægt vandamál, heldur vandamál sem tengist orku- og viðskiptaöryggi þeirra beint.
Hann sagði einnig að íranskir embættismenn hefðu misst af mörgum tækifærum í gegnum árin vegna tilhneigingar þeirra til að ofmeta stöðu sína. „Ég vona að þeir geri það ekki að þessu sinni.“
Gargash segir umferð um Hormússund verða að snúa aftur til þess sem hún var fyrir stríðið, sem hófst 28. febrúar. Á friðartímum fer um fimmtungur allrar olíu og jarðgass heims um sundið.
„Þetta ætti að vera alþjóðleg siglingaleið.“
Íranski byltingarvörðurinn tilkynnti í morgun að 35 skip hefðu farið um sundið með þeirra leyfi síðasta sólarhringinn. Þetta hafi bæði verið olíuflutningaskip og gámaskip. Byltingarvörðurinn sagði í gær að 31 skip hefði farið um sundið.