Héldu eina glæsi­legustu skírnar­veislu sumarsins - Vísir

Héldu eina glæsi­legustu skírnar­veislu sumarsins - Vísir

Héldu eina glæsi­legustu skírnar­veislu sumarsins - Vísir

Blaðamaður ræddi við Söndru um undirbúning og daginn sjálfan en það sem fjölskyldunni fannst mikilvægast var að fá allt sitt nánasta fólk saman í fallega athöfn.

„Umfram allt vildum við auðvitað að Atlas Máni strákurinn okkar myndi fá nafnið sitt við fallega athöfn. Draumurinn var að halda veisluna og athöfnina úti í garði. 

Okkur Hilmari finnst ótrúlega gaman að halda útiveislur. Lykillinn er að plana þær ekki með of löngum fyrirvara svo maður sjái aðeins hvert veðrið stefnir og auðvitað vera með opinn hug fyrir því að planið geti gjörbreyst. Þegar þessar útiveislur ganga svo upp eru þær alveg yndislegar,“ segir Sandra og brosir.

Með lista fyrir allt saman

Nafnið Atlas er samkvæmt henni í raun út í bláinn en guðsonur hennar og jafnframt sonur bestu vinkonu hennar Esterar Óskar heitir Leon Máni.

„Hún var einmitt guðmóðir Atlasar Mána sem mér þykir mjög skemmtileg tenging.“

Sandra er ansi skipulögð en það er að ótrúlega mörgu að huga við undirbúning á svona degi og veislu sem þessari.

„Sérstaklega þegar börnunum fjölgar og maður hefur minni tíma. Það sem ég mæli með er að panta allt í tæka tíð. Á okkar lista voru það veitingar, kakan, skilti á kökuna, sérmerkingar á borð við kerti og gestabók, að bóka tónlistarfólk og ljósmyndara, skreytingar og panta þann búnað sem þarf, eins og húsgögn, dúka, hljóðkerfi eða annað.

Sömuleiðis er gott að gefa sér góðan tíma í allan undirbúning. Sem dæmi má nefna að ákveða lög í athöfn og veitingar, skoða og máta föt sem manni líður vel í, ákveða föt á börnin og þvo og strauja allt fyrir skírnardaginn.“ 

Henni fannst mjög fínt að vera með gróft tímaplan og sjá daginn og uppsetningu á öllu svolítið fyrir sér.

„Eins finnst mér mikilvægt að vera með smá lista yfir myndir sem maður vill að ljósmyndarinn nái. Um að gera að vera búin að skrifa niður hjá sér því dagurinn líður svo hratt og áður en maður veit af er veislan búin og allir farnir.

Talandi um hvað svona veislur líði hratt, þá langaði mig að muna að njóta veislunnar. Maður þarf stundum að minna sig á það og staldra aðeins við á svona dögum, líta í kringum sig og virkilega taka inn augnablikin.“

Amman á bak við glæsilegu veitingarnar

Þrátt fyrir að hjúin hafi vaknað við ský á sunnudagsmorgninum héldu þau enn í vonina um útiveislu.

„Það er búið að vera ótrúlega gott veður dagana fyrir. Manni fannst eiginlega aðeins of bjartsýnt að vonast eftir þriðja góða veðurdeginum eftir þetta rigningarsumar en við vorum ótrúlega heppin og um hádegi var orðið alveg heiðskírt sem entist allan daginn en athöfnin var klukkan 16:00.“

Þau eyddu öllum deginum fram að veislu í að undirbúa garðinn sem umbreyttist í kirkju.

„Við leigðum öll húsgögnin hjá Exton. Mig langaði að vera með hvíta stóla sem væru ekki klappstólar. Exton var með þessa fallegu hvítu stóla og við byrjuðum að stilla garðinum upp eins og kirkju en fengum svo gestina til að hjálpa okkur að endurraða stólunum í kringum hringborðin eftir athöfn, sem við leigðum líka hjá Exton. Dúkana leigðum við hjá Fönn.

Mamma og maðurinn hennar sáu að mestu leyti um glæsilegar veitingar sem þau undirbjuggu að hluta til hjá okkur. Svo fengum við fleiri úr fjölskyldunni til að aðstoða við eitt og annað.

Við vorum búin að sækja kökuna, nafnaskilti og annað fyrir skírnardaginn, þannig að við reyndum að lágmarka þannig stúss á skírnardaginn sjálfan.“

Löbbuðu yfir í næsta garð fyrir blöðruboga

Sandra segist þó alltaf stressa sig á því að hafa of lítið í boði þannig að hún sendi eiginmanninn í Costco fyrir varabirgðir.

„Ég held að þetta komi frá mömmu, hún er alltaf með nóg af öllu í matarboðum og veislum og vill aldrei að neitt klárist, heldur vera viss um að allir hafi fengið nóg og rúmlega það,“ segir Sandra kímin.

Hún var síðan búin að panta blöðruboga sem kom á svæðið klukkan tvö en hann var ekki alveg að smella við heildarmyndina. Örlagaríkur söngur bjargaði málunum.

„Þegar hann var settur upp þá fannst mér hann allt í einu ekki passa sem svona altari eins og ég hafði séð fyrir mér. Við Hilmar höfðum hins vegar heyrt stórkostlegan söng í garði í götunni fyrir ofan deginum áður. Við sáum aðeins inn í garðinn frá okkar garði og sýndist vera brúðkaup í gangi. Þar var þessi fallegi blómabogi.

Ég gat eiginlega ekki hætt að hugsa um hann þannig það endar með því að Hilmar röltir yfir til brúðhjónanna og spyr hvort við megum endurnýta þennan fallega boga í okkar veislu. Þau tóku vel í það og brúðguminn bar hann meira að segja yfir til okkar með Hilmari. 

Svo kom í ljós að það var Svana Lovísa sem rekur Stúdíó Flamingo sem hafði sett hann upp og skreytt hann. Hún var sem betur fer tilbúin að leigja okkur hann líka svo þetta gekk allt upp. Blöðruboginn fékk í staðinn að njóta sín sem eins konar inngangur í veisluna og það má segja að allt hafi heppnast fullkomlega þennan fallega dag,“ segir Sandra enn á bleiku skýi að lokum.

Hér má sjá vel valdar myndir frá veislunni:

Falleg fjölskylda, Hilmar, Sandra Björg, Helgi Snær og Atlas Máni.Eygló Gísla
Flott mæðgin.Eygló Gísla
Skírnardrengurinn.Eygló Gísla
Helgi Snær aðstoðaði foreldrana við undirbúning.Eygló Gísla
Sandra Björg ásamt Töru Sif vinkonu hennar og Atlasi Mána litla.Eygló Gísla
Skírnarveislan minnti svolítið á sumarbrúðkaup.Eygló Gísla
Þóra Björg Sigurðardóttir prestur skírði Atlas Mána en hún gifti Söndru og Hilmar og skírði líka fyrri son þeirra. Eygló Gísla
Tara Sif fasteignasali og Elfar Elí lögfræðingur, vinahjón Söndru og Hilmars.Eygló Gísla
Söngkonan Aníta tók vel valin lög með hljóðfæraleikurum.Eygló Gísla
Svanhildur Heiða og Ester Ósk glæsilegar vinkonur.Eygló Gísla
Ásdís móðir Söndru töfraði fram hinar glæsilegustu veitingar.Eygló Gísla
Ester með guðson sinn Atlas Mána.Eygló Gísla
Hilmar, Sandra og Atlas Máni.Eygló Gísla
Helgi Snær bíður eftir gestum.Eygló Gísla
Sandra pantaði allar skreytingar með góðum fyrirvara en blómaboginn var bara í næsta garði.Eygló Gísla
Tara Sif Birgisdóttir, fasteignasali og þjálfari, glæsileg.Eygló Gísla
Skál í boðinu.Eygló Gísla
Fimleikadrottningin Kolbrún Þöll.Eygló Gísla
Drengurinn fékk nafnið Atlas Máni.Eygló Gísla
#eina #glæsilegustu #héldu #skírnarveislu #sumarsins


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929065d/heldu-eina-glaesi-legustu-skirnar-veislu-sumarsins

📰 Aðrar fréttir

Bréfið var ekki frá sprengjuvörgunum
📅 17.10.2026 👁️ 0
Bréfið var ekki frá sprengjuvörgunum
Menn sem útskrifuðust úr menntaskóla vorið 1960 sendu nafnlaust bréf á fjölmiðla þar sem þeir lýstu sprengingu Hafmeyjunnar í Tjörninni sér á hendur. ...
Katrín Oddsdóttir: Íslenskar stofnanir undirseldar norskum fjárfestum með freka lögmenn á sínum snærum
📅 17.10.2026 👁️ 0
Katrín Oddsdóttir: Íslenskar stofnanir undirseldar norskum fjárfestum með freka lögmenn á sínum snærum
Þegar kemur að leyfisveitingum í sjókvíaeldi virðist sem enginn í kerfinu beri neina ábyrgð nema bara á sínum afmarkaða hluta og því er enginn með alm...
Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxus­lífi og slags­málum - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxus­lífi og slags­málum - Vísir
Combs var dæmdur í fjögurra ára og tveggja mánaða fangelsi eftir að hann var sakfelldur 2. júlí 2025 fyrir brot tengd vændi. Brotin vörðuðu flutning f...
Jón Gnarr opnar boxið
📅 17.10.2026 👁️ 0
Jón Gnarr opnar boxið
Jón Gnarr opnar boxið Fréttin17. október 2026Björn Bjarnason, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Jón Gnarr. Björn Bjarnason skrifar: Ég tel að kosninga...
Vikulokin – Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans
📅 17.10.2026 👁️ 0
Vikulokin – Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans
Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þi...
Minna á út­gáfu nafnskírteina vegna rann­sóknar lög­reglu - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Minna á út­gáfu nafnskírteina vegna rann­sóknar lög­reglu - Vísir
Lögreglan sendi í vikunni út viðvörun til foreldra og forráðamanna barna og ungmenna vegna VPN-stillingar í smáforritinu sem gerir óviðkomandi kleift ...
„Rússar vilja skilja milljónir okkar eftir án rafmagns og hita“
📅 17.10.2026 👁️ 0
„Rússar vilja skilja milljónir okkar eftir án rafmagns og hita“
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, harmar ákvörðun Bandaríkjaforseta um að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Rússar gerðu í gær eina stærs...
Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Vegagerðarinnar en gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag vegna hvassviðris með talsver...
Martröðin að eignast heimili
📅 17.10.2026 👁️ 1
Martröðin að eignast heimili
Martröðin að eignast heimili Þor­valdur S. Helgason skrifar um Fast­eigna­martröð­ina eftir Gabrielė Labanauskaitė, sem sýnd er í Sam­komu­hús­inu. Þa...
Margrét segir lögreglukonu hafa haft meiri áhyggjur af dreifingu typpamyndanna – „Victim blaming“
📅 17.10.2026 👁️ 1
Margrét segir lögreglukonu hafa haft meiri áhyggjur af dreifingu typpamyndanna – „Victim blaming“
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, segist hafa fengið ítrekaðar typpamyndir frá starfsmanni opinberrar stofnunar. Þegar hún tilkynnti mál...
Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði
📅 17.10.2026 👁️ 1
Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði
Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði Fréttin17. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Samsett mynd: Jón Gnarr og Þorbjörg Sig...
Cage og Banderas  í næstu seríu True Detective - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Cage og Banderas  í næstu seríu True Detective - Vísir
Báðir tveir, hinn bandaríski Cage og hinn spænski Banderas, hafa mátað sig við hlutverk í þáttunum síðasta árið eða svo og hafði Cage nánast greint fr...
Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
„Þetta byrjaði þannig að ég var með slitinn liðþófa,“ segir Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir, sem greindist með æxli á stærð við golfkúlu í hnénu í aðdragand...
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
📅 17.10.2026 👁️ 1
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir var kærasta þegar hún steig upp í flugvél á leið til Barcelona en unnusta þegar hún steig...
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
📅 17.10.2026 👁️ 1
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að eiga við að minnsta kosti þrjá bílstjóra sem lögðu á flótta í nótt.Einn ökumaður flúði af vettvangi eftir að ...
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
📅 17.10.2026 👁️ 1
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti flóknu verkefni í álverinu í Straumsvík í nótt þegar kviknaði í vinnuvél inni í álverinu. Draga þurfti vélina ú...
Stormasamt veður og viðvaranir víða
📅 17.10.2026 👁️ 1
Stormasamt veður og viðvaranir víða
Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi...
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
Konan, sem er á þrítugsaldri, var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með áverka sem lögreglan lýsti sem „mjög alvarlegum“. Á laugardagsmorgun var ástand ...
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
📅 17.10.2026 👁️ 1
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
More women living in the Canary Islands will be offered routine breast screening from next year, as the regional health service begins widening the pr...
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
Trump undirritaði sjálfur lögin í síðasta mánuði en ákvörðun hans nú kom aðeins tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út s...
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
📅 17.10.2026 👁️ 1
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
Emergency services were called at about 16:45 on Friday, and pronounced both dead at the scene.
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
Tveir ungir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um skotárás við íþróttahöll í Stokkhólmi í gærkvöldi. 25 ára kona liggur þungt haldin á sjúk...
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
Samkvæmt tilkynningu fóru tveir dælubílar á vettvang en það tók um tvo tíma að klára verkefnið vegna þess hve snúið það var. Ekki má nota vatn inni í ...
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð sunnan roki og mjög snörpum vindhviðum, en slíkir vindar geta valdið foktjóni. Því hefur verið gefin út appelsínugu...
Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir
Það var í apríl árið 2022 sem hún vaknaði upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjöls...
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða en hámarkshraði þar sem hann var stöðv...
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
📅 17.10.2026 👁️ 1
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
„Margt sem ég hef séð situr í mér“ Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að kon...
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
📅 17.10.2026 👁️ 1
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir forsetatilskipun í gær sem felldi úr gildi viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi.Þær beindust ...
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
Hjónin kynntust í Verzló árið 2016, þegar Kolbrún var busi og Arnór á þriðja ári. Þau eru miklir stuðboltar sem eru umkringt fjörugu fólki en Arnór ræ...
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
📅 17.10.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
Mynd Víða í Íslendingasögum er sagt frá örlagaríkum ferðum í
Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm
„Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis“, segir Mladen Zivanovic, viðmælandi Heimskviða, um komandi þingkosnin...
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
📅 17.10.2026 👁️ 1
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
Börnum sem fóru í greiningu hjá skólaþjónustu Reykjavíkur fjölgaði um 58% frá 2013 til 2024, meðan börnum í borginni fjölgaði aðeins um 4%. Á landsvís...
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
📅 17.10.2026 👁️ 1
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
A 24-year-old man was airlifted to hospital with serious injuries after falling from a buggy in southern Gran Canaria yesterday afternoon (Friday).The...
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
📅 17.10.2026 👁️ 1
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
The Canary Islands will have a mix of sunshine and cloud this Saturday, 17th October, with temperatures dropping towards the average for this time of ...
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
📅 17.10.2026 👁️ 2
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
Norski herinn hefur komist að því að bílar frá Kína hafi safnað viðkvæmum upplýsingum um starfsemi hans.Meðal þess sem bílarnir skráðu og geymdu voru ...
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
📅 17.10.2026 👁️ 2
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
Glæsihýsi sem metin eru á milljónir bandaríkjadala urðu gróðureldum að bráð sunnan við Los Angeles í gær.Eldarnir hafa sviðið tæpa 190 hektara á skömm...
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
📅 17.10.2026 👁️ 2
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
It comes after the prime minister refused to say whether he backed expansion.
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
📅 17.10.2026 👁️ 2
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
Sóttvarnarstofnun Afríku segir óvíst hvert fé sem ráðstafa átti til viðbragða við ebólufaraldrinum hafa ratað. Upphæðin hleypur á 700 milljónum dala, ...
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
📅 17.10.2026 👁️ 2
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
Brothers Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were killed on a surfing trip in an apparent botched robbery.
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
📅 17.10.2026 👁️ 2
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
Skýrsla var gefin út í gær sem sýnir fram á að eyðing regnskógarins í Brasilíu hefur ekki verið minni í fjóra áratugi.Niðurstöður skýrslunnar þykja já...
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
📅 17.10.2026 👁️ 2
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
Trump says parts of a new law that aims to punish Moscow for its war against Ukraine are against US national interests.
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
📅 17.10.2026 👁️ 1
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
The US president temporarily ends many restrictions on Moscow recently passed by Congress over "national security" concerns.
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
📅 17.10.2026 👁️ 6
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
📅 17.10.2026 👁️ 1
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 6
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
25 ára gömul kona er alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi um níuleytið að staðartíma í gærkvöldi.Íþr...
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
📅 17.10.2026 👁️ 6
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
Miranda Hart became emotional and spoke about her health problems as more action unfolded on Friday.
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
📅 17.10.2026 👁️ 6
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
Fórnarlömb árásarmannsins sem hóf skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon í gær voru börn með sérþarfir. Árásarmaðurinn var sextán ára drengur o...
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 6
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
Hin fimm ára Rhoam Summer og hin 25 ára Meghan Lambert, kennari við skólann, létust í árásinni sem átti sér stað í gær, fimmtudaginn 15. október, í Si...
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
📅 16.10.2026 👁️ 2
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
Defence Minister Guido Crosetto tells the BBC the US risks prolonging Russia's full-scale invasion rather than helping to end it.