Fyrri hluti sumarsins á meginlandi Spánar hefur verið sá heitasti frá því að mælingar hófust árið 1961, samkvæmt spænsku veðurstofunni, AEMET. Tvær öflugar hitabylgjur hafa gengið yfir landið frá byrjun júní og hitinn verið langt yfir meðallagi nær alla daga sumarsins hingað til.
Meðalhiti á meginlandi Spánar frá 1. júní til 15. júlí mældist 24,5°C, sem er 3,3 gráðum hærra en meðaltal sama tímabils á árunum 1991 til 2020. Að sögn talsmanns AEMET, Rubén del Campo, munu lokatölur morgundagsins líklega ekki breyta heildarmyndinni.
Loftslagsbreytingar lengi hitatímabil
Vísindamenn telja loftslagsbreytingar af mannavöldum lengja hitatímabil, auka styrk hitabylgna og gera þær tíðari. Þá þorna gróðursvæði hraðar, sem eykur hættu á gróðureldum.
Mikil hitabylgja í lok júní náði víða yfir Evrópu og jók hættu á gróðureldum á Spáni. Þar eru 13 látnir eftir mannskæðustu gróðurelda í áraraðir.
Að minnsta kosti 18 slösuðust og yfir 1600 manns þurftu að yfirgefa heimili sín þegar mikill gróðureldur geisaði í Almería-héraði í suðausturhluta landsins.
Hitinn er talinn hafa komið óvenju snemma á Spáni í ár sökum hitabylgja víðs vegar í Evrópu. Þótt Spánverjar séu vanir háum sumarhita í júlí og ágúst, náðist methiti þegar í júní og veðurstofan segir að nánast allir dagar sumarsins hingað til hafi verið hlýrri en telst eðlilegt.
Þá voru hæstu viðvörunarstig gefin út í Kantabríu og Baskalandi í norðurhluta landsins, þar sem hitabylgjur eru sjaldgæfari en annars staðar á Spáni.
Rauð viðvörun á morgun
Veðurspár gera ráð fyrir áframhaldandi miklum hita og hefur rauð viðvörun verið gefin út fyrir hluta Valencia- og Aragón-héraða á morgun.