Fjárlagafrumvarp næsta árs sýnir að ríkisstjórnin hefur lítinn eða engan áhuga á því að fyrirheit sín um að allir landsmenn fái sinn heimilislækni gangi eftir. Þetta segir stjórn Félags íslenskra heimilislækna sem lýsir sárum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Stjórn félagsins segir að þrátt fyrir að aukið fé sé ætlað til heilsugæslunnar sé það hvergi nærri nóg til að vinna á uppsöfnuðum fjárhagsvanda hennar. Í raun þýði frumvarpið að miðað við fólksfjölgun og launaþróun blasi við að færri krónur verði til umráða til að sinna hverjum einstaklingi.
„Gangi frumvarpið óbreytt eftir í þessum efnum, mun það gera núverandi ástand, sem er með öllu óviðunandi, enn verra,“ segir stjórnin.
Stjórn Félags íslenskra heimilislækna segir að heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir eigi þegar í erfiðleikum með daglegan rekstur. Auk þessa sé sérnám heimilislækna ekki fjármagnað og Landspítalinn hafi sagt upp stöðum sérnámslækna í heimilislækningum vegna fjárskorts. Stjórnin segir vandséð hvernig áframhaldandi fjármögnun eigi að leiða til þess að landsmenn geti haft fastan heimilislækni.