Hefur barist í sjö ár eftir að hafa kært nauðgun á Ítalíu - Vísir

Hefur barist í sjö ár eftir að hafa kært nauðgun á Ítalíu - Vísir

Hefur barist í sjö ár eftir að hafa kært nauðgun á Ítalíu - Vísir

Magnea var í ítölskunámi í Macerata-héraði sumarið 2019 þegar hún kærði ítalskan karlmann fyrir nauðgun. Hún var þá sautján ára. Maðurinn, sem var á þrítugsaldri þegar atvikið átti sér stað, hefur neitað sök og haldið því fram að samfarir hafi átt sér stað með samþykki hennar.

Málið hefur nú farið í gegnum mörg stig ítalska réttarkerfisins. Maðurinn var sýknaður fyrir héraðsdómi í Macerata árið 2022. Áfrýjunardómstóll í Ancona sneri þeirri niðurstöðu við í október í fyrra og dæmdi hann í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot.

Í lok maí síðastliðnum ógilti hæstiréttur Ítalíu, Corte di Cassazione, áfrýjunardóminn og sendi málið aftur til meðferðar, nú fyrir áfrýjunardómstólinn í Perugia.

Ítalska ríkið rekur sakamálið sjálft, í gegnum saksóknara, en brotaþoli sem vill gæta eigin hagsmuna í málinu þarf jafnan að hafa sinn eigin lögmann. Sá lögmaður fylgir málinu eftir fyrir hennar hönd, hefur samskipti við dómstóla, kemur að kröfugerð, fer yfir gögn, bregst við málflutningi verjenda og gætir þess að sjónarmið brotaþola komist að í ferlinu. Í máli sem fer í gegnum mörg dómstig getur slíkur kostnaður orðið mikill.

Magnea hefur því sjálf þurft að standa undir kostnaði við að hafa eigin lögmann til að gæta hagsmuna hennar í ítalska dómskerfinu. 

Fór aftur út eftir góða reynslu árið áður

„Ég hafði verið í ítölskuáfanga í menntaskóla og kennarinn þar fer út með hópa á sumrin í ítölskunám. Ég fór fyrst í þetta nám sumarið 2018, mér fannst þetta svo skemmtilegt þannig að ég ákvað að fara aftur sumarið eftir það,“ segir Magnea í samtali við Vísi.

Á þessum tíma var ég í rauninni bara þessi týpíski unglingur. Ég var í menntaskóla og var bara að reyna að finna minn veg í lífinu.

Dagurinn áður en atvikið átti sér stað var, að hennar sögn, mjög góður.

„Ég byrjaði á því að fara í ítölskutíma yfir daginn og svo fórum við Íslendingarnir öll út að borða saman og áttum mjög góða stund saman.“

Ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að atvikið hafi átt sér stað aðfaranótt 10. júlí 2019 í Castelraimondo í Macerata-héraði.

Samkvæmt umfjöllun ítalskra fjölmiðla fór Magnea út um kvöldið með vinkonu sinni og hitti þar tvo ítalska menn sem þær höfðu komist í kynni við. Síðar um kvöldið fóru þau í bíltúr sem endaði á afskekktum stað.

Í fyrri frétt Vísis um málið, sem byggði á ítalskri fjölmiðlaumfjöllun og dómsfréttum, kom fram að Magnea hefði sagt lögreglu að hún hefði ítrekað reynt að koma því á framfæri að hún vildi ekki halda áfram. Hún hefði sagt manninum að hætta og að hún vildi fara heim. Maðurinn hefur aftur á móti haldið því fram að um samþykkt kynmök hafi verið að ræða.

Ítalskir fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um málið undanfarin misseri.Samsett

Magnea vill ekki fara í smáatriði um atvikið á þessu stigi málsins. Hún segir þó að það sem gerðist í beinu framhaldi hafi skipt máli.

„Eftir að þetta átti sér stað sendi ég strax á bestu vinkonu mína sem var með mér á Ítalíu sem varð til þess að hún kom á móti mér. Svo í beinu framhaldi var fararstjórinn látinn vita af þessu og þá byrjaði allt ferlið.“

Hún segir fyrstu upplifun sína af ítalska kerfinu hafa verið góða.

„Lögreglumennirnir sem komu að mínu máli héldu mjög vel utan um mig og gerðu í raun allt til þess að láta mér líða sem best. Það sem sat held ég mest í mér var hvað þeim sjálfum fannst þetta erfitt. 

Lögreglumennirnir voru alveg miður sín yfir að þetta hafi gerst.

Handtekinn nokkrum mánuðum síðar

Í nóvember 2019 greindu ítalskir staðarmiðlar frá því að maðurinn hefði verið settur í stofufangelsi vegna málsins. Þá höfðu nokkrir mánuðir liðið frá atvikinu. Fjallað var um málið í miðlum í Macerata-héraði, meðal annars Il Resto del Carlino, Cronache Maceratesi og Picchio News.

Í þeirri umfjöllun kom fram að rannsókn ítalskra yfirvalda hefði meðal annars byggst á framburði Magneu, læknisfræðilegum gögnum, lífsýnum og skilaboðum. Málið fór síðan fyrir dómstóla á Ítalíu.

Magnea segir það hafa verið gífurlega erfitt að hafa þurft að rifja málið upp aftur og aftur í gegnum rannsókn, skýrslutökur og réttarhöld.

„Enn þann dag í dag finnst mér mjög erfitt að tala ýtarlega um það sem gerðist.“

Þegar hún kom aftur heim til Íslands fékk hún viðeigandi aðstoð.

„Ég held að andlegi þátturinn sé erfiðastur í þessu. Það sem hjálpaði mér mjög mikið var að ég var send í Barnahús beint eftir að ég kom heim og byrjaði strax meðferð með fagaðila þar.“

Magnea kveðst hafa fengið áfall þegar sýknudómurinn yfir gerandanum var kveðinn upp.Aðsend

Sýknaður í Macerata

Í nóvember 2022 sýknaði héraðsdómur í Macerata manninn. Sú niðurstaða vakti síðar mikla athygli á Ítalíu, ekki síst vegna rökstuðnings dómsins.

Í ítölskum fjölmiðlum hefur verið fjallað um að dómurinn hafi meðal annars byggt á því að Magnea hefði samþykkt að fara með manninum á afvikinn stað, setjast með honum í aftursætið og kyssa hann. Í dómnum var einnig vísað til þess að hún hefði áður haft kynmök og væri á getnaðarvörn. Af þeim sökum hefði hún, að mati dómsins, átt að geta gert sér grein fyrir því hvert aðstæðurnar gætu þróast.

Þá var í niðurstöðu dómsins fjallað um að Magnea hefði ekki veitt nægjanlega mótspyrnu, kallað á hjálp eða reynt að komast út úr bílnum. Ítalskir fjölmiðlar hafa einnig greint frá því að dóminum hafi þótt sálrænar afleiðingar atviksins frekar tengjast kynlífi sem hefði farið öðruvísi en ætlað var, en ekki nauðgun.

Rökstuðningurinn vakti hörð viðbrögð þegar hann komst í hámæli. Málið varð hluti af stærri umræðu á Ítalíu um samþykki, kynferðisbrot og meðferð þolenda innan réttarkerfisins.

Magnea segir sýknudóminn hafa verið mikið áfall.

„Ég tók því alls ekki vel. Mér fannst mjög erfitt að lesa röksemdarfærsluna og hvernig dómarinn talaði um mig. Ég man svo vel eftir deginum sem ég fékk að vita af þessu. Ég var í lokaprófum og átti að vera að læra, en ég bara kom mér ekki til þess að gera neitt. 

Ég var alveg búin á því.

Málinu var áfrýjað.

„Mér var trúað“

Þann 21. október í fyrra sneri áfrýjunardómstóllinn í Ancona niðurstöðu héraðsdómsins við. Maðurinn var sakfelldur og dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot, þó í vægari flokki samkvæmt ítölskum lögum.

Í málflutningi saksóknara fyrir áfrýjunardómstólnum kom fram að Magnea hefði samþykkt kossa og atlot en gert skýrt að hún vildi ekki ganga lengra. Saksóknari lagði áherslu á að samþykki þyrfti að vera til staðar allan tímann, ekki aðeins við upphaf aðstæðna.

Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því að áfrýjunardómstóllinn hefði talið rök héraðsdóms úrelt og lagalega ótraust. Dómurinn vakti mikla athygli á Ítalíu og var víða túlkaður sem mikilvæg leiðrétting á fyrri niðurstöðu.

Magnea segir tíðindin hafa haft mikil áhrif á sig.

„Ég gat ekki hætt að gráta þegar ég heyrði þau tíðindi. Fyrst og fremst var ég þakklát fyrir að vera loksins trúað.“

Fabio Maria Galiani, lögmaður Magneu á Ítalíu, sagði í samtali við ítalska fjölmiðla eftir dóminn að niðurstaðan hefði veitt henni þá staðfestingu að henni hefði verið trúað. Hann sagði jafnframt að héraðsdómurinn í Macerata hefði byggt á rökum sem ættu ekki heima í nútímalegri meðferð kynferðisbrotamála.

Málið vakti einnig pólitísk viðbrögð. Ítalskir stjórnmálamenn, kvenréttindasamtök og jafnréttisnefndir gagnrýndu orðalag og forsendur héraðsdómsins. Þingmenn Demókrataflokksins á Ítalíu sögðu málið sýna þörf á skýrari samþykkislöggjöf. Ítalskar kvenréttindaraddir lögðu áherslu á að samþykki mætti afturkalla hvenær sem er og að fyrri kynferðisreynsla brotaþola gæti ekki haft þýðingu við mat á því hvort samþykki hefði verið fyrir hendi.

Lögmenn mannsins lýstu hins vegar yfir undrun sinni á niðurstöðu áfrýjunardómstólsins og sögðu málið byggjast á vísbendingum og mótsögnum í framburði. Þeir boðuðu áfrýjun til Cassazione, hæstaréttar Ítalíu.

Málið fer aftur fyrir dóm

Í lok maí síðastliðnum komst málið aftur í fréttir á Ítalíu þegar Cassazione ógilti áfrýjunardóminn frá Ancona. Málið verður því tekið aftur fyrir á áfrýjunarstigi, að þessu sinni í Perugia.

Það þýðir að sakfellingin frá október 2025 stendur ekki óbreytt. Málinu er enn ekki endanlega lokið og endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. 

Maðurinn hefur verið sýknaður í fyrsta dómstigi, sakfelldur í öðru dómstigi, en sú sakfelling hefur nú verið ógilt og málið sent til nýrrar meðferðar.

Magnea segir að nýjasta þróunin hafi ekki breytt því að hún hafi í raun búið við stöðuga óvissu frá árinu 2019.

„Ég er í raun búin að lifa í þessari óvissu síðustu sjö ár, þannig það er ekki mikil breyting.

 En ég verð alltaf meira og meira búin á því, eftir því sem tíminn líður.

Ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að lögmaður Magneu og fjölskyldu hennar hafi lýst ákvörðun Cassazione sem þungum áfanga. 

Hann sagði að beðið væri eftir rökstuðningi dómsins og að vonast væri til þess að áfrýjunardómstóllinn í Perugia tæki mið af þeim atriðum sem Cassazione teldi þurfa að skoða nánar.

Hann hefur jafnframt bent á að ýmis atriði í málinu hafi verið túlkuð Magneu í óhag, þar á meðal viðbrögð hennar eftir atvikið, framburður hennar, þýðingar í skýrslutökum og það hvernig hún brást við undir miklu álagi.

Fimm milljónir í lögfræðikostnað

Ástæðan fyrir því að Magnea þarf sjálf að standa undir lögfræðikostnaði tengist því hvernig sakamál eru rekin á Ítalíu.

Í tilfelli Magneu hefur málið staðið frá árinu 2019, farið fyrir héraðsdóm, áfrýjunardómstól og hæstarétt Ítalíu, og verður nú tekið fyrir að nýju. Slíkt ferli kallar á áframhaldandi lögmannsvinnu og hefur að sögn Magneu haft verulegan kostnað í för með sér.

Hún segir kostnaðinn hleypa á milljónum króna, og áframhaldandi málsmeðferð kallar á enn frekari fjárútlát. 

Magnea hefur nú sett af stað fjáröflun á GoFundMe til að standa straum af áframhaldandi lögfræðikostnaði vegna málsins.

Hún segir að það hafi ekki verið auðveld ákvörðun að biðja opinberlega um fjárhagslegan stuðning.

„Það var ekki fyrr en ég fór að segja vinkonu minni frá því hvað allt í kringum þetta sé dýrt, þá stakk hún upp á að það gæti mögulega verið sniðugt að stofna einhvers konar söfnun. Ég var samt mjög lengi að melta það hvort ég ætti að stíga það skref þar sem það er mjög út fyrir minn þægindaramma að tala opinberlega.“

Hún segir fjárhagslega þátt málsins leggjast gífurlega þungt á sig.

„Þetta hefur verið alveg frekar erfitt, en fjölskyldan mín hefur stutt mig í gegnum þetta allt saman. Ég gæti ekki verið þakklátari fyrir að eiga fjölskylduna sem ég á.“

Magnea segir að fólk geri sér ekki endilega grein fyrir því hvað langvarandi dómsmál af þessu tagi kosti, ekki aðeins fjárhagslega heldur einnig andlega og líkamlega.

„Ég held að andlegi þátturinn sé erfiðastur í þessu.“

Magnea segir biðina, og óvissuna, það erfiðasta við allt saman.Aðsend

Hefur ekki getað lokað málinu

Frá árinu 2019 hefur Magnea þurft að fylgja málinu eftir í gegnum rannsókn, skýrslutökur, dómsmeðferð, sýknudóm, áfrýjun, sakfellingu og nú nýja meðferð eftir ákvörðun Cassazione.

Hún segir að það hafi reynst erfiðast af öllu að geta aldrei lokað málinu.

„Það sem hjálpar mér fyrst og fremst að halda áfram er fólkið í kringum mig.“

Hún segir jafnframt að hún voni að frásögn hennar geti orðið öðrum til stuðnings.

„Það sem ég vona mest að komi út úr þessu er að fólk viti að það er ekki eitt. Þetta er ótrúlega erfitt ferli. En það er svo mikilvægt að segja frá.“

#barist #eftir #hafa #hefur #sjö


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262905558d/hefur-barist-i-sjo-ar-eftir-ad-hafa-kaert-naudgun-a-italiu

📰 Aðrar fréttir

Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 0
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 0
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 0
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 0
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 0
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 0
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 2
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán man...
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sp...
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum m...
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
📅 07.10.2026 👁️ 4
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís...
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
📅 07.10.2026 👁️ 2
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
Officials were recorded by undercover journalists discussing a potential way to secure foreign donations to the party.