Hassan Eibish hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sérstaklega grófa nauðgun á 18 ára stúlku í Randers í Danmörku.
Hassan er einfaldlega sagður vera erlendur maður í dönskum fjölmiðlum en ekki kemur fram frá hvaða landi hann er. Hann var jafnframt dæmdur til brottvísunar frá Danmörku og fær 12 ára endurkomubann þegar hann hefur setið af sér refsinguna.
Atvikið átti sér stað að morgni 31. janúar síðastliðins eftir að Hassan og stúlkan hittust fyrir tilviljun við bar í Randers. Þau þekktust ekki áður.
Samkvæmt ákærunni beitti Hassan stúlkuna ofbeldi og hótunum og þvingaði hana niður í kjallara í bakgarði barsins. Þar nauðgaði hann henni á hrottafenginn hátt.
Stúlkan reyndi að berjast á móti og komast undan en Hassan hélt henni niðri, sló hana ítrekað, togaði í hárið á henni og hélt árásinni áfram. Hann tók nauðgunina jafnframt upp á myndband sem var notað sem sönnunargagn í málinu.
Móðirin fann hana grátandi
Móðir stúlkunnar varð áhyggjufull þegar hún náði ekki sambandi við dóttur sína um morguninn, enda var það óvenjulegt þegar hún var úti að skemmta sér að sögn móðurinnar.
Þegar stúlkan svaraði loksins var hún grátandi og náði aðeins að segja „mamma“ áður en Hassan tók símann úr hendi hennar.
Hann sagði móðurinni að hann væri góður vinur dóttur hennar og myndi keyra hana heim.
Móðirin hélt sjálf á staðinn og fann þar dóttur sína grátandi, en Hassan var þá farinn.
Handtekinn sama dag
Hassan var handtekinn síðar sama dag eftir að lögregla skoðaði upptökur úr eftirlitsmyndavélum og starfsfólk barsins veitti upplýsingar um hver hann væri.
Hassan var sakfelldur fyrir nauðgun en hann neitar sök og hefur áfrýjað málinu.
Móðir stúlkunnar segir árásina hafa haft djúpstæðar afleiðingar fyrir dóttur hennar og að hún sé nú í sálfræðimeðferð vegna áfallsins.