Myndband af aksturslagi manna í hringtorgi hefur komið af stað líflegri umræðu á Facebook þar sem ekki eru allir sammála um hver hafi verið í rétti og ekki síður hvernig eigi yfirhöfuð að aka í tveggja akreina hringtorgi.
Viðar Ingi Ragnarsson birti myndbandið í Facebook hópnum Fávitar í umferðinni og sagði að ökumaður hefði ekið inn í hringtorgið án þess að líta nægilega í kringum sig og næstum valdið árekstri.
Á myndbandinu sést Viðar aka á ytri akrein hringtorgsins og fram hjá fyrsta útgangi. Að hans sögn ætlaði hann út á öðrum útgangi og var með stefnuljós, en hægt er að heyra í stefnuljósinu í myndbandinu. Þá ekur hvítur bíll inn í hringtorgið fyrir framan hann og litlu munar að bílarnir rekist saman.
„Þarftu endurmenntun?“
Í stað þess að allir væru sammála um að hinn ökumaðurinn hefði átt að víkja snerist kommentakerfið fljótt upp í mikla umræðu um aksturslag Viðars sjálfs.
„Vertu á innri ef þú ætlar ekki út í fyrsta,“ skrifaði einn og annar spurði einfaldlega: „Þarftu endurmenntun?“
Fleiri tóku í sama streng og töldu að Viðar hefði átt að vera á innri akrein þar sem hann ætlaði ekki út á fyrsta útgangi.
„Ytri ef þið ætlið út í fyrsta og innri ef þið ætlið að halda áfram,“ skrifaði einn.
Aðrir voru ósammála og bentu á að ekkert bannaði ökumanni að aka áfram á ytri hring, svo lengi sem hann virti forgang þeirra sem væru á innri hring og ætluðu út úr torginu.
Umræðan varð á köflum öllu minna málefnaleg. Einn sagði Viðari að hann væri „pungur“ fyrir að vera á ytri akrein og fékk svarið „þú þungi pungur“. Annar kallaði hann einfaldlega „vitleysing“.
En hvað segja lögin?
Umferðarlögin eru nokkuð skýr um þau atriði sem mest er deilt um í þræðinum.
Í 19. grein umferðarlaga segir:
„Í hringtorgi sem skipt er í tvær akreinar skal ökumaður velja hægri akrein, ytri hring, ætli hann að aka út úr hringtorginu á fyrstu gatnamótum.“
Lögin segja hins vegar ekki að ökumaður sem ætlar út á öðrum útgangi verði að vera á innri hring.
Þá segir jafnframt í sömu grein að ökumaður sem ekur að hringtorgi skuli veita þeim sem þegar eru í torginu forgang. Ökumaður á ytri hring skal jafnframt veita þeim sem ekur á innri hring forgang út úr torginu og óheimilt er að skipta á milli ytri og innri hrings inni í hringtorginu.
Í 33. grein laganna er síðan sérstaklega kveðið á um stefnumerki þegar ökumaður „ekur á ytri hring torgs fram hjá gatnamótum af torginu“.
Lögin gera því beinlínis ráð fyrir því að ökumaður geti ekið á ytri hring fram hjá útgangi, en kveða jafnframt á um að hann skuli gefa stefnuljós þegar hann ekur fram hjá útgangi.
Hér má sjá myndband Samgöngustofu um hvernig aka skuli í hringtorgi.