Karlmaður sem var farþegi í flugvél á leið frá Grikklandi á föstudag er enn á spítala eftir að hafa næstum sogast út úr vélinni. Eiginkona hans, sem var með honum í fluginu, segir það hafa verið honum til happs að sætisbeltið var spennt.
Hinn 61 árs Ljubisa Karovic sat við glugga í Boeing 737-800 vél á leið frá Þessalóníku í Grikklandi þegar glugginn brotnaði um hálftíma eftir brottför.
„Hann fór út um gluggann á því augnabliki. Hann var úti í tvær eða þrjár mínútur í mesta lagi, segir Svetlana Maksimovic eiginkona mannsins.
Malta air rak vélina fyrir hönd írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair. Atvikið er enn til rannsóknar en samkvæmt bráðabirgðaskýrslu er talið að brak úr hreyfli vélarinnar hafi hafnað á glugganum.
Maksimovic segir það hafa verið ógnvekjandi að sjá höfuð og herðar eiginmanns síns komin út um glugga vélarinnar.
„Ég og konan sem sat við hlið hans reyndum að toga hann aftur inn og krafturinn var svo mikill. Hann var með sætisbeltið spennt, sem betur fer og þess vegna hélst hann í sætinu sínu. Svo kom karlmaður að hjálpa okkur, frá Albaníu, held ég.“
Maksimovic segir stúlkuna sem sat við hlið eiginmannsins hafa aðstoðað sig allan tímann. „Maðurinn sem hjálpaði mér að ná eiginmanninum inn aftur færði mér vatn. Í þriðja skiptið tókst okkur varla að vekja hann, þá var hann farinn að fölna verulega. Hann fann vatn, færði mér það og við helltum því yfir hann. Annars fékk ég enga hjálp.“
Grunur um annmarka á viðhaldi
Vélin var á leið til Memmingen í Þýskalandi en var snúið við og lenti aftur í Þessalóníku. Karovic er enn á spítala þar með áverka á höfði og herðum. Núningssár og alvarlegt sálrænt áfall.
„Í dag var settur hjartariti á hann. Læknarnir sáu að eitthvað er ekki alveg í lagi svo hann verður lengur á spítalanum, ég veit ekki hve lengi.“
Lögmaður hjónanna segir grun um annmarka á viðhaldi vélarinnar. Henni hafði einnig verið snúið við daginn áður vegna tæknilegra örðugleika.