Hamid Wali, 36 ára, hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað 16 ára stúlku í Springburn Park í Glasgow í Skotlandi. Ákæran hefur vakið sérstaka athygli þar sem skosk lögregla lýsti hinum grunaða upphaflega sem „sólbrúnum Evrópubúa“ þegar óskað var eftir upplýsingum frá almenningi. Málið er sagt enn eitt tilfellið þar sem bresk lögregla óttast að fá á sig rasista stimpil.
Árásin átti sér stað að kvöldi 26. júní þegar stúlkan var á gangi um Springburn Park. Samkvæmt ákærunni gekk maðurinn upp að henni, ýtti henni inn í runna og nauðgaði henni.
Lögreglan hóf umfangsmikla leit í kjölfarið og birti opinbera lýsingu á hinum grunaða. Þar sagði að um væri að ræða mann á þrítugsaldri með sólbrúna húð, „líklega Evrópubúa“, meðalhár og grannur. Hann var sagður hafa verið með svarta derhúfu, svartan jakka og svartar buxur.
Kom fyrir dóm
Wali kom fyrir dóm þar sem hann var ákærður fyrir nauðgun auk tveggja brota vegna ógnandi og „móðgandi hegðunar“ (sérbreskt fyrirbæri). Hann tók ekki afstöðu til ákærunnar, var úrskurðaður í gæsluvarðhald og mun koma aftur fyrir dóm á næstu dögum.
Lýsing lögreglunnar gagnrýnd
Eftir að nafn Wali varð opinbert hafa margir gagnrýnt upphaflega lýsingu skosku lögreglunnar á manninum á samfélagsmiðlum. Gagnrýnin snýr að því að lögreglan hafi í opinberri tilkynningu lýst hinum grunaða sem „líklega Evrópubúa“, en sá sem síðar var ákærður heitir Hamid Wali.
Upphaflega tilkynningin var birt á vef Police Scotland og endurbirt af fjölmiðlum áður en hún var síðar fjarlægð eftir handtökuna.