Hamas-samtökin hafa ákveðið að leysa upp stjórnarnefndina sem farið hefur með völd á Gaza í nærri tvo áratugi. Í tilkynningu samtakanna segir að til standi að óháð sérfræðinganefnd taki við stjórn borgaralegra málefna á svæðinu.
Yfirmaður neyðarstjórnarinnar, Mohammed al-Farra, hefur sagt af sér. Hann segist jafnframt hafa ákveðið að leggja nefndina niður til að greiða fyrir stjórnarfarslegum breytingum. Þær feli í sér að Þjóðarnefnd um stjórn Gaza (e. National Committee for the Administration of Gaza, NCAG) taki við stjórntaumunum.
„Með ákvörðuninni hafa Hamas-samtökin tekið skref í átt að því að fara ekki lengur með völd á Gaza. Þetta er gert til þess að fjarlægja allar forsendur fyrir hernámi Ísraela, sem halda áfram árásum sínum og útrýmingu,“ segir Hazem Quassem, talsmaður Hamas, í samtali við fréttaveitu AFP.
„Við vonumst til þess að Þjóðarnefnd um stjórn Gaza taki fljótlega við. Samtökin eru því tilbúin að afhenda nefndinni yfirráð yfir stjórnkerfi svæðisins.“
Samkvæmt Hamas hafa aðrar palestínskar fylkingar fagnað ákvörðuninni eftir að hún var tilkynnt.
Nefndinni verður stýrt af palestínska embættismanninum Ali Shaath. Fram að þessu hefur hún starfað utan Gaza, meðal annars vegna andstöðu ísraelskra stjórnvalda við að hún taki til starfa innan svæðisins.
Viðræður um næsta áfanga vopnahlés milli Hamas og Ísraels standa yfir og enn er deilt um framtíðarstjórn á Gaza. Ísrael hafnar því að Hamas haldi völdum á svæðinu en vill heldur ekki að Palestínustjórn taki við að svo stöddu. Hamas segjast hins vegar ekki ætla að ræða afvopnun fyrr en palestínsk stjórn hefur verið sett á laggirnar.