Íbúum í Norðurþingi fækkaði um 107 á níu mánaða tímabili frá 1. desember 2025. Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, tengir þessa fækkun vinnslustoppi PCC á Bakka.
Það er mikið áhyggjuefni og sérstaklega bara tengt lokun PCC á Bakka.
Hallareksturinn ætti ekki að koma á óvart
Á fundi byggðarráðs í gær var kynnt hálfs árs uppgjör sveitarfélagsins. Hallarekstur sveitarfélagsins nemur 404 milljónum króna og segir Bergþór það beintengt við verksmiðju PCC og ætti ekki að koma á óvart.
„Vandamálið er bara að tekjurnar okkar standa í stað og útsvarið er undir því sem það var á sama tíma í fyrra. Tímabilið sem er verið að miða við er tímabilið sem PCC var á fullum afköstum fram til júlí í fyrra. Þetta er sex mánaða uppgjör. Þetta kemur fast við okkur núna,“ segir Bergþór.
Mikill áhugi á Bakka
Bergþór segir þó enga uppgjöf vera í sveitarfélaginu og mikill hugur er með framtíðar uppbyggingu á Bakka og von sé á jákvæðum fréttum þaðan enda mikill áhugi á svæðinu. Hinsvegar þurfi að fara í hagræðingu samhliða áætlunargerð í haust. Hann segir að aukna skattheimtu á ferðaþjónustu í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar ekki hjálpa.
„Öll aukin skattheimta, sérstaklega hvað varðar landsbyggðina - hvað varðar skattana á baðlónin - einnig það sem hefur verið að gerast með skemmtiferðaskipin hjá okkur. Við misstum helminginn af þeim árið 2026. Það er aðeins byrjað að hjarna við hjá okkur í áætlunum næsta árs en við verðum mörg ár að ná fyrri styrk þar.“