Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að tilefni ferðarinnar sé þrjátíu ára afmæli Leikskólans á Laugalandi en forsetahjónin munu einnig heimsækja Laugalandsskóla, Hjúkrunarheimilið Lund og Hellana á Hellu.
„Síðdegis verða þau viðstödd viðburð í Hellisheiðarvirkjun þar sem minnst verður 80 ára borsögu Jarðborana og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða,“ segir í tilkynningunni.