Halla Bergþóra Björnsdóttir tók við starfi ríkislögreglustjóra í dag. Hún tók við embættinu af Kristínu Öldu Jónsdóttur, yfirlögfræðingi embættisins, sem var staðgengill ríkislögreglustjóra.
Greint var frá þessu á Facebook-síðu Ríkislögreglustjóra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipaði Höllu Bergþóru í embættið. Í tilkynningu á Ísland.is segir að Halla Bergþóra hafi 19 ára reynslu af stjórnun lögregluembætta.
Síðustu 17 ár hefur Halla Bergþóra verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, meðal annars hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þá var hún lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu frá 2020 og þar til nú.