Alræmdur norðurkóreskur hakkarahópur er grunaður um að hafa stolið rafmyntum að verðmæti um 300 milljón dollara eða um 36,7 milljarða íslenskra króna um helgina.
Þetta er stærsti þjófnaður á rafmyntum sem vitað er um á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svo háþróaður stuldur er tengdur við Norður-Kóreu en stolnar rafmyntir eru notaðar til að fjármagna þróun kjarnorkuvopna samkvæmt nefnd Sameinuðu þjóðanna.
Hópurinn notar skammstöfun Norður-Kóreu í nafni sínu; DPRK Lazarus Group en DPRK er stytting á Democratic People's Republic of Korea.
Nefnd Sameinuðu þjóðanna áætlar að Norður-Kórea hafi stolið yfir þremur milljörðum dollara í rafmyntum síðan 2017. Bandaríkin sökuðu Norður-Kóreu um að hafa framið einn stærsta rafmyntaþjófnað sögunnar á síðasta ári, þegar rafmyntum að andvirði 1,5 milljarða dollara var stolið í sams konar ráni.