Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir

Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir

Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir

Í dag er Davíð 21 árs og vinnur að þróun á snjallforriti sem ætlað er fólki sem glímir við spilafíkn. Ekki síst ungu fólki sem á erfitt með að stíga fyrsta skrefið og leita sér hjálpar.

Vakti á nóttunni til að spila

Spilafíkn Davíðs byrjaði þegar hann var sautján ára nemandi í Tækniskólanum þar sem hann lagði stund á rafmagnsverkfræði. Stundum leiddist honum í tímum og hann var ekki alveg með hugann við námið. Þá leitaði hann í símann.

„Ég byrjaði að fara inn á svona „online casino“ síður, spilavíti á netinu, byrjaði með því að setja inn einhverjar tuttugu evrur og svo varð þetta strax bara svo ótrúlega gaman og spennandi. Fljótlega eftir að ég byrjaði fékk ég mjög stóran vinning upp á tæpa milljón. Ég áttaði mig náttúrulega ekki alveg á því hvað ég var að gera eða hvaða áhrif þetta myndi hafa á mig. Maður sá bara pening og var alltaf að vinna og vinna og maður vildi meira og meira.“

Eftir því sem leið á hækkuðu tölurnar. Spilamennskan varð fyrirferðarmeiri og fljótlega var hún farin að stjórna daglegu lífi hjá Davíð.

„Ég gat verið vakandi tvær eða þrjár nætur í röð að spila, mætt svo í skólann, spilað þar og farið út úr skólanum og haldið áfram að spila. Þetta var alveg búið að taka yfir. Þegar ég var í skólanum var tiltölulega auðvelt að fjármagna þetta. Ég var að vinna og notaði launin í að spila,“ segir Davíð sem byrjaði að steypa sér í skuldir.

„Ég tók yfirdrátt og ætlaði að nýta hann og klára þetta. En um leið og yfirdrátturinn var kominn var ég alltaf búinn með peninginn á þriðja eða fjórða degi mánaðarins. Þá byrjaði ég að spyrja foreldra mína og hina og þessa hvort ég gæti fengið smá lánað. Ég reyndi alltaf einhvern veginn að fá lánað, spilaði og reyndi svo að borga til baka.“

Þessi mynd var tekin þegar Davíð var í kringum 17 ára og spilafíknin var farin að taka yfir.Aðsend

Þrátt fyrir að spilamennskan væri farin að taka yfir stóran hluta lífsins tókst honum lengi vel að halda vandanum leyndum. Foreldrar hans vissu til að mynda ekki hvað var í gangi. 

Að einhverju leyti vissi Davíð það reyndar ekki heldur.

„Vinir mínir sáu að ég var að spila en þetta var í rauninni mjög falið. Ég held líka að ég hafi verið að blekkja sjálfan mig. Ég áttaði mig ekki sjálfur á því hvað ég var djúpt sokkinn í þetta. Ég hugsaði alltaf: „Ég get alveg hætt. Þetta er ekkert mál. Ég er bara að leika mér. Ég vinn bara eitthvað stórt og borga yfirdráttinn niður.“ Það var alltaf eitthvað slíkt. Ég áttaði mig ekki á því hvað þetta var orðið mikið. 

Ég var vakandi á nóttunni að spila. Ég var meira að segja að spila á meðan ég var að keyra.

Davíð lýsir því þannig að hann hafi verið farinn að skipuleggja næstu klukkutíma út frá því hvað gæti mögulega gerst inni í spilakössunum.

„Maður heldur að maður sé að missa af einhverju, en maður er í rauninni ekki að missa af neinu. Ég var til dæmis farinn að hugsa: „Ef þessi bónus kemur klukkan tvö eða þrjú í nótt og ég er ekki vakandi, þá missi ég af honum.“ Maður var farinn að reyna að reikna út spilakassana. Maður var alltaf að reyna að „vinna húsið“.“

Læsti sig inni og byrjaði aftur

Um nítján ára aldur var Davíð farinn að átta sig á því að þetta gengi ekki lengur. Hann var í ströggli með að greiða niður yfirdráttinn, hélt áfram að spila og þurfti á sama tíma að eiga pening til að lifa.

Í eitt skipti tókst honum að hætta að spila í um tvær vikur. Þá sagði hann foreldrum sínum frá öllu. Viðbrögð foreldranna voru sterk. Móðir hans fór að gráta og bæði hún og faðir hans voru í sjokki. 

Spilafíkn var til umfjöllunar í Kompás árið 2020 þegar kórónuveirufaraldurinn stóð yfir.

„Ég sagði mömmu og pabba frá því að ég væri með yfirdrátt upp á hálfa milljón, að ég hefði verið að spila. Þetta var mjög mikið sjokk fyrir mig og líka þau. Það er mjög erfitt að halda svona leyndarmáli í langan tíma og svo allt í einu að koma því frá sér,“ rifjar Davíð upp.

„Þegar ég var búinn að segja þeim frá þessu þennan dag fór ég inn í herbergið mitt, læsti mig inni og byrjaði aftur að spila. Ég fór bara í einhvers konar „blackout“. Ég held að spilafíklar skilji hvað ég á við þegar ég segi það. Ég man bara ekkert. Ég eyddi og eyddi og spilaði og spilaði. Það tók mig ekki nema klukkutíma að klára alla peningana mína. Það var enginn peningur eftir á framtíðarreikningnum, allur peningurinn var búinn. Síðan man ég bara að ég sat á rúmgaflinum hágrátandi.“

Faðir Davíðs hafði á þessum tíma glímt við krabbamein í um tíu ár og var mjög veikur. Davíð á sjálfur óljósar minningar frá þessu tímabili, enda mikið sem gekk á innan fjölskyldunnar.

Það eitt að hafa sagt foreldrunum frá vandanum þýddi ekki að Davíð væri tilbúinn að horfast fyllilega í augu við fíknina. Þvert á móti taldi hann sér trú um að þar sem honum hefði tekist að halda sig frá spilunum í tvær vikur væri vandamálið í raun leyst. Á þessum tíma var faðir hans að berjast við krabbamein og mikið gekk á innan fjölskyldunnar.

„Ég var enn þá fastur í fíkninni og ekki kominn út úr þessu á þessum tíma. Ég var búinn að ljúga að heilanum mínum án þess að átta mig á því. 

Ég hugsaði: „Ég er búinn að hætta í tvær vikur. Ég er ekki að spila lengur. Þetta er búið.“ Ég var ekkert að fara í meðferð eða eitthvað svoleiðis.“

Það breyttist skömmu síðar. Davíð leitaði til móður sinnar og bað um hjálp. Honum leið illa, hann hafði verið þunglyndur og var enn að spila.

Móðir hans hafði samband við Ölmu Hafsteins hjá spilavandi.is.

„Ég var síðan hjá henni í alveg dágóðan tíma. Ég fór líka á GA-fund (innsk: Gamblers anonymous - stuðningshópur fyrir fólk með spilafíkn), sem var ótrúlega erfitt. Að vera nítján eða tvítugur strákur og standa fyrir framan hóp af eldri mönnum og segja að „Ég er spilafíkill“ er svo sannarlega ekki auðvelt. Mamma kom með mér í fyrsta tímann. Ég ætlaði ekki að fara en hún minnti mig á það.“

Fjölskylda Davíðs hefur tekist á við margar áskoranir undanfarin ár.Aðsend

Í dag er hann að eigin sögn í bata frá fíkninni. Hann tekur einn dag í einu. 

„Og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið hjálp. Ég er heppinn. Ég veit að það eru mörg önnur og miklu verri dæmi þarna úti.“

Vinur bað hann um hjálp

Einn daginn fékk Davíð skilaboð frá kunningja sínum sem var sjálfur kominn í vandræði með spilamennsku.

„Hann spurði mig hvernig hann ætti að hætta og ég sagði honum að ég mælti mjög mikið með því að fara á GA-fund. Hann var stressaður yfir því að fara á fundinn, þannig að ég bauðst til að fara með honum og við mættum bara. Þá spratt upp þessi hugmynd hjá mér: að búa til einhvers konar samfélag, eða sem sagt samfélagsmiðil fyrir unga spilafíkla. 

Ég hugsaði með mér að það hlytu að vera ótrúlega margir ungir krakkar sem eru að spila, eiga við þetta vandamál að stríða en eru ekki að stíga fram, vita ekki hvert þeir eiga að leita eða hvernig þeir eiga að bera sig að.

Davíð hafði enga reynslu af forritun en hafði lengi haft áhuga á tækni og fór að þróa hugmyndina áfram. Í tvo mánuði sat hann heima og hannaði grunninn að appinu með hjálp gervigreindar.

„Ég setti síðan inn færslu í forritaragrúbbu á Facebook, lýsti hugmyndinni og óskaði eftir aðstoð frá forritara. Þá gerðist það að starfsmaður hjá Stokkur Software skrifaði komment undir færsluna og spurði: „Viltu fá aðstoð?“ Og ég auðvitað sagði ég strax já!“

Davíð segist hafa viljað fá fagfólk að verkefninu þar sem hans eigin útgáfa nægði ekki til þess að gera hugmyndina að raunverulegu og nothæfu forriti. 

„Þess vegna vildi ég fá atvinnumenn, fólk sem kann þetta, til að gera þetta af alvöru og búa til almennilegt app.“

Geta birt færslur nafnlaust

Sobrano verður ókeypis og verkefnið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Davíð vinnur nú að því að afla styrkja svo hægt verði að ljúka þróun forritsins. Hugmyndin er meðal annars að búa til samfélag þar sem fólk getur rætt við aðra sem þekkja spilafíkn af eigin raun.

„Þetta er í rauninni svolítið eins og Facebook. Þú getur birt færslu nafnlaust eða undir eigin nafni. Svo eru fleiri möguleikar tengdir þessu og stuðningi frá öðrum spilafíklum. Það er líka svona „streak“-kerfi þar sem maður getur fylgst með bataferlinu. Maður getur fylgst með því hversu lengi maður hefur haldið sér frá spilum. Ef maður fer aftur að spila missir maður „streakið“ og byrjar aftur. Svo er líka neyðarnúmer í appinu sem hægt er að hringja í ef maður er í vanda eða er að fara að spila. Maður getur líka verið með sponsor í appinu.“

Sponsor-kerfið er hugsað þannig að fólk sem þekkir spilafíkn geti verið til staðar fyrir þá sem eru að reyna að hætta.

„Segjum sem svo að það séu fimm strákar á appinu sem eru að reyna að hætta að spila. Þá get ég verið sponsor fyrir þá. Þeir geta hringt í mig, talað við mig og ég get reynt að hjálpa þeim. Þetta snýst um að reyna að hjálpa þessum ungu krökkum að stíga fyrsta skrefið. 

Það er svo mikil skömm tengd þessu en það er nauðsynlegt að útrýma þessari skömm. Það eru ótrúlega margir í þessari stöðu.

Stöðugt verið að tala um að betta

Sobrano er ætlað öllum aldurshópum en Davíð horfir sérstaklega til ungs fólks. Þar telur hann þörfina mikla.

„Ég á til dæmis vini sem eru í fótbolta, í meistaraflokki og á okkar aldri. Þeir segja mér að strákarnir í búningsklefanum séu stöðugt að tala um þetta. Það sést jafnvel á þeim hvort þeir hafi tapað eða unnið. Þeir eru annaðhvort glaðir eða leiðir. Það er alveg hægt að taka eftir því.“

Davíð þekkir sjálfur vel hugsunarháttinn sem getur fylgt spilafíkninni, ekki síst tilfinninguna um að maður þurfi stöðugt að vera með, að ef maður hætti, fari að sofa eða loki síðunni sé hætta á að missa af einhverju. Og hann þekkir spurninguna sem gjarnan fylgir þegar fólk reynir að skilja vandann utan frá.

„Ég hef mjög oft fengið þessa spurningu frá fólki: „Af hverju hættirðu þessu ekki bara?“ En málið er að „hætta þessu bara“ er miklu erfiðara en það hljómar. Það er í raun mjög erfitt að útskýra fyrir einhverjum sem hefur ekki verið í þessum sporum.“

Sobrano er enn í vinnslu og Davíð leitar nú að styrkjum til að halda þróuninni áfram. Upplýsingar um verkefnið er að finna á sobrano.is og á Instagram undir nafninu Sobrano Iceland.

Vaxandi vandi meðal ungra karlmanna

Saga Davíðs endurspeglar þróun sem sérfræðingar hafa varað við undanfarin ár. Þótt þátttaka Íslendinga í hefðbundnum fjárhættuspilum hafi dregist saman hefur spilun á erlendum vefsíðum aukist, sérstaklega meðal ungra karlmanna. 

Í rannsókn á spilahegðun Íslendinga kom fram að um fimmtungur karla á aldrinum 18 til 25 ára hefði spilað peningaspil á erlendum vefsíðum. Sérfræðingar hafa bent á að netspilun tengist aukinni hættu á spilavanda og að það að elta tap með sífellt hærri upphæðum sé eitt skýrasta viðvörunarmerkið.

Vandinn virðist jafnframt byrja snemma. Samkvæmt ESPAD-könnun frá 2024 höfðu 41 prósent íslenskra 15 til 16 ára ungmenna veðjað fyrir peninga síðastliðna tólf mánuði, samanborið við 23 prósent að meðaltali í 37 Evrópulöndum. 

Ísland var þar næsthæst á eftir Ítalíu. Þá fimmfaldaðist velta viðskiptavina Íslandsbanka undir átján ára aldri á veðmálasíðum milli áranna 2023 og 2024, úr um tíu milljónum í rúmlega fimmtíu milljónir króna.

Aðgengið er mikið og oft er auðvelt að fela spilamennskuna. Alma Hafsteinsdóttir spilafíkniráðgjafi hefur bent á að markhópurinn sé í auknum mæli drengir og ungir menn á aldrinum 15 til 30 ára. Hún hefur einnig vakið athygli á svokölluðum lukkuboxum í tölvuleikjum, þar sem börn kynnast snemma sömu þáttum og einkenna fjárhættuspil: tilviljun, spennu, umbun og lönguninni til að reyna aftur.

Á sama tíma hafa erlendar veðmála- og spilavítasíður orðið sýnilegri í íslensku samfélagi. Þær hafa meðal annars verið markaðssettar með aðstoð þekktra tónlistarmanna, áhrifavalda og einstaklinga tengdra íþróttaumfjöllun. Sérfræðingar hafa varað við því að slík markaðssetning geti stuðlað að því að fjárhættuspil verði eðlilegur hluti af umhverfi ungs fólks.

#allur #hágrét #peningurinn #rúminu #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262943091d/ha-gret-i-ruminu-thegar-allur-peningurinn-var-buinn

📰 Aðrar fréttir

Sjaldséð mótmæli í Moskvu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
Um 60 mótmælendur voru handteknir í Moskvu í gær þegar um 2.000 manns komu saman á vegum Kommúnistaflokks landsins. Í fyrstu var efnt til samkomu til ...
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir háa skattlagningu á áfengi hér á landi og spyr hvaða rök séu fyrir því að skattar...
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
📅 05.10.2026 👁️ 0
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
„Við höfum bara ekki gefið eitt né neitt út um þetta mál heilt yfir,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuð...
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
Vísindamennirnir þrír fá verðlaunin fyrir uppgötvun sína á ljósstýrðri erfðatækni (e. optogenetics). Í tilkynningu nefndarinnar er því lýst sem aðferð...
Hálkublettir að hausti
📅 05.10.2026 👁️ 0
Hálkublettir að hausti
Hálkan hefur snúið aftur og er ráðlegt fyrir bílstjóra að huga að henni á nokkrum vegum.Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrek...
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
Embættismenn bandaríska varnarmálaráðuneytisins staðfestu í gær að vélarnar, sem taldar eru vera tólf B-1 sprengjuflugvélar, hefðu verið fluttar aftur...
Why has Spain's PM called a snap election?
📅 05.10.2026 👁️ 0
Why has Spain's PM called a snap election?
A series of measures to tackle the housing crisis were defeated in parliament on Friday
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlau...
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
📅 05.10.2026 👁️ 2
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
„Það varð ákveðinn trúnaðarbrestur sem varð til þess að við gátum ekki haldið áfram. Þetta er leiðinleg staða,“ segir Svavar Grétarsson, oddviti Samfy...
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
📅 05.10.2026 👁️ 1
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
The cost of a new fixed-rate mortgage has been rising in recent weeks as lenders face higher costs.
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
„Það sem við erum að gera er í sjálfu sér ekkert merkilegt en ferðamenn hafa eimitt áhuga á því sem okkur finnst hversdagslegt,“ segir Hrafnhildur Guð...
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
Andrew var handtekinn snemma morguns þann 19. febrúar 2026 á heimili sínu í Sandringham-höll. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu á heim...
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
📅 05.10.2026 👁️ 2
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
Mestu rigningartíð sem heimildir eru til um í Tókýó, höfuðborg Japans, er lokið. Hún stóð í 37 daga, lengur en nokkru sinni fyrr, og úrkoman var þrefö...
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
📅 05.10.2026 👁️ 2
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
Alvotech hefur fengið samþykktan viðauka við markaðsleyfi á Bandaríkjamarkaði fyrir AVT02, sem er hliðstæða við Humira-líftæknilyfið. Í tilkynningu fr...
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
📅 05.10.2026 👁️ 2
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
Bandaríski faðirinn Edward Gillen, 59 ára, segist hafa misst sjónina varanlega eftir að hafa notað Ozempic. Hann hefur höfðað mál gegn framleiðanda ly...
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
Meirihlutinn sprakk í gær en engar nánari skýringar hafa fengist á því hvers vegna samstarfi flokkanna lauk.  Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta ...
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck segir að krakkarnir hans hafi engan áhuga á sambandsráðum hans.Hann sagði í spjallþætti Jimmy Kimmel að hann hef...
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
📅 05.10.2026 👁️ 2
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
Dómstóll í Lundúnum tekur á fimmtudag fyrir mál Andrew Mountbatten-Windsor gegn bresku lögreglunni vegna húsleitar sem var gerð á heimili hans í febrú...
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
📅 05.10.2026 👁️ 2
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
Íslenskur karlmaður sem grunaður er um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. RÚV greinir ...
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
📅 05.10.2026 👁️ 1
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn konu um greiðsluþátttöku í lækniskostnaði erlendis, vegna fylgikvi...
Rubio heimsækir Ísland í dag
📅 05.10.2026 👁️ 0
Rubio heimsækir Ísland í dag
Rubio heimsækir Ísland í dag Marco Ru­bio ræð­ir við ráða­menn í Reykja­vík um efna­hags- og ör­ygg­is­mál. Heim­sókn­in er hluti af Evr­ópu­ferð hans...
Andrew takes legal action on search warrants during his arrest
📅 05.10.2026 👁️ 1
Andrew takes legal action on search warrants during his arrest
Mountbatten-Windsor was arrested on suspicion of misconduct in public office and later released under investigation in February.
Andrew Mountbatten-Windsor takes legal action over arrest search warrants
📅 05.10.2026 👁️ 0
Andrew Mountbatten-Windsor takes legal action over arrest search warrants
Mountbatten-Windsor's lawyers are challenging warrants used relating to his arrest in February on suspicion of misconduct in public office.
Police step up patrols against illegal camping in south Tenerife
📅 05.10.2026 👁️ 2
Police step up patrols against illegal camping in south Tenerife
The authorities in San Miguel de Abona have stepped up surveillance of natural areas to tackle illegal camping and protect environmentally sensitive l...
Vann ó­væntan sigur í fyrri um­ferðinni - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Vann ó­væntan sigur í fyrri um­ferðinni - Vísir
Flavio Bolsonaro, frambjóðandi hægri manna í Brasilíu, hafði betur gegn Lulu Da Silva, sitjandi forseta landsins, í fyrri umferð forsetakosninganna í ...
Boðar til þingkosninga á Spáni
📅 05.10.2026 👁️ 1
Boðar til þingkosninga á Spáni
Spánverjar ganga að kjörborðinu 29. nóvember, hálfu ári áður en kjörtímabilinu átti að ljúka. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, tilkynnti í dag ...
Boðar til þingkosninga á Spáni eftir átök um húsnæðismál
📅 05.10.2026 👁️ 1
Boðar til þingkosninga á Spáni eftir átök um húsnæðismál
Spánverjar ganga að kjörborðinu 29. nóvember, hálfu ári áður en kjörtímabilinu átti að ljúka. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, tilkynnti í dag ...
Önnur umferð í Brasilíu eftir óvæntan sigur Bolsonaro
📅 05.10.2026 👁️ 2
Önnur umferð í Brasilíu eftir óvæntan sigur Bolsonaro
Önnur umferð í Brasilíu eftir óvæntan sigur Bolsonaro Flavio Bol­son­aro fékk 47 pró­sent at­kvæða og Luiz Inacio Lula da Silva, for­seti Bras­il­íu, ...
Boðaði ó­vænt þing­kosningar á Spáni - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Boðaði ó­vænt þing­kosningar á Spáni - Vísir
Sánchez hélt ræðu í beinni sjónvarpsútsendingu í morgun þar sem hann tilkynnti spænsku þjóðinni að þingkosningarnar yrðu þann 29. nóvember. Til stóð a...
Stofnar „Ofur­greindar­stjórnina“ þrátt fyrir á­kall um hægari þróun - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Stofnar „Ofur­greindar­stjórnina“ þrátt fyrir á­kall um hægari þróun - Vísir
Trump greinir frá þessum vendingum í færslu á Truth Social, samfélagsmiðli sem er í hans eigu. Verkefnastjórnin mun bera heitið Ofurgreindarsveitin og...
Man's body found on coast of Las Galletas in south Tenerife
📅 05.10.2026 👁️ 2
Man's body found on coast of Las Galletas in south Tenerife
The body of a man has been found on the coast at Las Galletas in Arona, South Tenerife, prompting an investigation by the Guardia Civil. Emergency ser...
Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 5
Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ - Vísir
Mjög ánægð með flugið Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, athafnakona og samfélagsmiðlastjarna flaug með Icelandair á dögunum og fékk að kíkja í stj...
Íbúar á Þórshöfn með miklar áhyggjur eftir að dæmdur barnaníðingur flutti í bæinn
📅 05.10.2026 👁️ 4
Íbúar á Þórshöfn með miklar áhyggjur eftir að dæmdur barnaníðingur flutti í bæinn
Íbúar á Þórshöfn með miklar áhyggjur eftir að dæmdur barnaníðingur flutti í bæinn Foreldrar á Þórshöfn hafa lýst áhyggjum eftir að maður sem dæmdur va...
Bjart vestan til en heldur blautara austar
📅 05.10.2026 👁️ 4
Bjart vestan til en heldur blautara austar
Veðrinu verður misskipt í dag. Útlit er fyrir hægan vind á vestanverðu landinu og þar helst þurrt eftir rigningar síðustu daga. Norðaustan til blæs að...
Fékk ekki að borða nema hún stundaði kyn­líf - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 4
Fékk ekki að borða nema hún stundaði kyn­líf - Vísir
Jenný segir of erfitt þolendur ofbeldis að fá skilnað og sáttameðferð sé misnotuð til að nálgast þolendur og börn þeirra að nýju. Jenný segir auk þess...
Ís­lenskir karl­menn flytji inn konur og haldi þeim 
sem kyn­lífs­þrælum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Ís­lenskir karl­menn flytji inn konur og haldi þeim sem kyn­lífs­þrælum - Vísir
Jenný segir of erfitt þolendur ofbeldis að fá skilnað og sáttameðferð sé misnotuð til að nálgast þolendur og börn þeirra að nýju. Jenný segir auk þess...
Amazon MGM Studios scout Gran Canaria for future productions
📅 05.10.2026 👁️ 3
Amazon MGM Studios scout Gran Canaria for future productions
Gran Canaria could become the location for future international film and television productions after a delegation of senior executives from Amazon MG...
BT agrees rescue deal to buy broadband operator TalkTalk
📅 05.10.2026 👁️ 4
BT agrees rescue deal to buy broadband operator TalkTalk
The takeover still needs to be approved by the regulator, but would give certainty to TalkTalk's millions of customers
Hand­tekin í Banda­ríkjunum grunuð um njósnir - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 5
Hand­tekin í Banda­ríkjunum grunuð um njósnir - Vísir
Wanying Zhang er talin hafa elt son forseta Taívan í fyrra þegar hann ferðaðist til Seattle-borgar í Washington-ríki. Hún er sögð hafa sent ljósmyndir...
Slydda og snjó­koma til fjalla - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 4
Slydda og snjó­koma til fjalla - Vísir
Sömuleiðis verður rigning suðaustanlands framan af degi en síðan úrkomulítið. Á Norðausturlandi verður rigningin nærri sjávarmáli en slydda eða snjóko...
Opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg í dag
📅 05.10.2026 👁️ 4
Opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg í dag
Í dag klukkan tvö verður opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Á vef Vegagerðarinnar segir að opnun vegarin...
Canary Islands close to another record year for foreign tourists
📅 05.10.2026 👁️ 3
Canary Islands close to another record year for foreign tourists
The Canary Islands are heading towards another exceptionally strong year for tourism, with the number of international visitors during the first eight...
Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 5
Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en ekki eru veittar nánari upplýsingar um gang mála þar. Atvikið var á borði lögreglumanna lögreglustöðvar eitt sem...
Lögregla kvödd til þegar tveir menn voru komnir með höfuð inn um glugga heimasætu
📅 05.10.2026 👁️ 4
Lögregla kvödd til þegar tveir menn voru komnir með höfuð inn um glugga heimasætu
Lögregla var kölluð að heimahúsi í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins eftir að tveir menn voru komnir með höfuðið inn um glugga dóttur húsráðanda.Ekki k...
Hæðirnar óma af á ný í Salzburg
📅 05.10.2026 👁️ 4
Hæðirnar óma af á ný í Salzburg
Nú ættu aðdáendur Sound of Music eða Söngvaseiðs að gleðjast því glænýtt safn var opnað nýverið í Austurríki. Barnabarn hins raunverulega Georgs von T...
Hæðirnar óma á ný í Salzburg
📅 05.10.2026 👁️ 4
Hæðirnar óma á ný í Salzburg
Nú ættu aðdáendur Sound of Music eða Söngvaseiðs að gleðjast því glænýtt safn var opnað nýverið í Austurríki. Barnabarn hins raunverulega Georgs von T...
Court of Appeal hears residents' parade challenge over Drumcree dispute
📅 05.10.2026 👁️ 0
Court of Appeal hears residents' parade challenge over Drumcree dispute
The deadlock over the Orange Order march in Portadown - opposed by residents of the Garvaghy Road - has lasted since last Sunday morning.
Kona handtekin grunuð um njósnir fyrir Kína
📅 05.10.2026 👁️ 4
Kona handtekin grunuð um njósnir fyrir Kína
Bandaríska alríkislögreglan handtók konu á flugvelli í Los Angeles sem grunuð er um að hafa njósnað um son Lai Ching-te Taívanforseta og fjölskyldu ha...
Watch: How Brazil's dramatic election unfolded
📅 05.10.2026 👁️ 4
Watch: How Brazil's dramatic election unfolded
Millions of Brazilians took to the polls on Sunday for the first round of the country's presidential elections.
Staðfest að rústir nærri Narsarsuaq voru stór miðaldakirkja
📅 05.10.2026 👁️ 4
Staðfest að rústir nærri Narsarsuaq voru stór miðaldakirkja
Rannsókn hóps fornleifafræðinga og annarra sérfræðinga hefur leitt í ljós að rústir nærri Narsarsuaq á Suður-Grænlandi eru stór miðaldakirkja. Þar fan...